Leikmaður 4. umferðar: Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
KF vann sterkan 4-1 sigur gegn Dalvík/Reyni í 2. deildinni síðasta föstudagskvöld. Miðvörðurinn kraftmikli Sigurjón Fannar Sigurðsson átti mjög góðan leik í hjarta varnarinnar hjá KF og lét finna mikið fyrir sér.
Sigurjón er leikmaður umferðarinnar í 2. deild fyrir frammistöðu sína. Hann segir að útnefningin komi sér nokkuð á óvart enda oftast sóknarmennirnir sem stela senunni í þessari deild.
Sigurjón er leikmaður umferðarinnar í 2. deild fyrir frammistöðu sína. Hann segir að útnefningin komi sér nokkuð á óvart enda oftast sóknarmennirnir sem stela senunni í þessari deild.
Vildi spila meira
„Þetta var bara hörkuleikur og við ætluðum okkur allan tímann sigur. Við töpuðum báðum leikjunum gegn þeim í fyrra og það kom ekkert annað til greina. Svo var þetta grannaslagur og það er auðveldara að gíra sig upp í þannig leiki," segir Sigurjón.
„Þetta var jafnari leikur en tölurnar segja. Við vorum meira með boltann en notuðumst við skyndisóknir og kláruðum dæmið."
Sigurjón er á 22. aldursári en hann kom til KF frá KA fyrir þetta tímabil. Hvernig kann hann við sig í nýjum herbúðum?
„Bara frábærlega. Þetta er snilld. Mér finnst ég hafa tekið hárrétt skref. Það er gott að fá leiki, ég vildi spila meira. Maður vill spila hvern einasta leik. KF hefur mjög blandaðan hóp af gömlum sem ungum mönnum. Þetta er mjög góð blanda."
Þjálfari KF er Lárus Orri Sigurðsson sem sjálfur var varnarmaður sem lét finna fyrir sér. Sigurjón segir hann hjálpa sér mikið. „Það er frábært að hafa hann, maður getur lært mikið af kallinum."
Förum í alla leiki til að vinna
KF hefur hlotið sjö stig úr síðustu þremur leikjum eftir að hafa tapað gegn Völsungi í fyrstu umferð.
„Fyrsti leikurinn hjá okkur var skelfilegur en síðustu þrír leikir hafa verið mjög góðir. Við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni og engu öðru," segir Sigurjón en KF heimsækir KV í næstu umferð.
„Það verður örugglega erfiður leikur en við förum í alla leiki til að vinna þá."
Hann býr enn á Akureyri. „Við erum þrír sem búum á Akureyri; ég, Magnús Blöndal og Arnór Egill (Hallsson) og við keyrum um þrisvar í viku á æfingar. Það er lítið mál, þetta er stutt," segir Sigurjón Fannar Sigurðsson.
Sjá einnig:
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir