Leikmaður 11. umferðar: Halldór Bogason (KV)
„Það var mjög auðvelt að gíra sig upp í þetta enda þvílíkur rígur þarna á milli og gaman að spila á móti þessum gaurum," segir Halldór Bogason, varnarmaður KV, sem er leikmaður 11. umferðar 2. deildar karla.
KV vann 2-1 sigur á Gróttu en Halldór skoraði fyrra mark síns liðs.
KV vann 2-1 sigur á Gróttu en Halldór skoraði fyrra mark síns liðs.
„Svo eru þetta eiginlega allt saman gamlir KR-ingar í Gróttunni. Maður hefur aldrei tapað á móti Gróttu og það breytist ekki. Þeir eru samt með hörkulið og stóra leikmenn."
Sigurður Helgason, þjálfari Gróttu, missti sterka leikmenn yfir í KV í vetur. „Meðan á leik stóð heyrðist lítið í honum en maður sá hann eftir leik og þá sauð á honum. Það var ekkert verra."
Vel var mætt á leikinn.
„Það var helvíti vel mætt báðum megin. Stemningin á vellinum var góð og ég hef aldrei spilað fyrir framan svona marga á KV-Park. Það var geðveikt veður og það skemmdi ekki fyrir. Það þyrfti kannski að bæta við pöllum þegar það eru svona stórleikir," segir Halldór en KV leikur heimaleiki sína á gervigrasvelli KR:
Halldór er uppalinn KR-ingur fæddur 1991 en hann lék með Aftureldingu í fyrra. Hann hefur verið einn allra besti leikmaður KV á tímabilinu.
„Ég er mjög sáttur með mig en ég hef átt einn til tvo slaka leiki líka. Heilt yfir er ég búinn að vera helvíti góður að mínu mati."
KV fer í toppsæti 2. deildarinnar ef liðið vinnur KFR í kvöld og Reynir Sandgerði tapar fyrir HK á sama tíma.
„Menn vita það að við getum alveg tapað leikjum eins og við getum unnið þá. Við höfum alveg unnið tæpa sigra líka. Er það ekki bara styrkleikamerki að vinna jafna leiki?"
„Ég hugsa að KFR verði erfiðir. Þeir þurfa öll stig sem þeir geta komist yfir. Þeir eru ekki langt frá Hamri sem er í þriðja neðsta sæti. Ég held að þeir verði alveg jafn erfiðir og hvert annað lið hugsa ég," segir Halldór Bogason.
Sjá einnig:
Leikmaður 10. umferðar - Dejan Pesic (Völsungur)
Leikmaður 9. umferðar - Helgi Ármannsson (KFR)
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir