Leikmaður 6. umferðar: Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Magnús Már Einarsson, leikmaður Aftureldingar, lék lykilhlutverk með liðinu á fimmtudag. Hann skoraði tvö mörk í 5-3 sigri gegn Reyni Sandgerði.
Reynismenn voru á toppnum fyrir leikinn og höfðu ekki tapað leik. Magnús er leikmaður umferðarinnar í 2. deild.
Reynismenn voru á toppnum fyrir leikinn og höfðu ekki tapað leik. Magnús er leikmaður umferðarinnar í 2. deild.
,,Ég hefði varla getað teiknað byrjunina í leiknum betur upp sjálfur. Við mættum hrikalega ákveðnir til leiks og komumst í 3-0 á fyrsta korterinu. Í hálfleik töluðum við mikið um að hleypa þeim ekki inn í leikinn en það fór eitthvað öfugt ofan í okkur því þeir skoruðu tvívegis á fyrstu fjórum mínútunum í síðari hálfleik."
,,Það fór um mann á tímabili eftir það og klukkan leið ansi hægt á köflum í síðari hálfleik en þegar fimmta markið kom þá gat maður andað léttar."
Magnús skoraði sjálfur fimmta mark Aftureldingar í leiknum og fagnaði með því að hlaupa út að hliðarlínu og fá míkrafón hjá kynni leiksins. Hann kynnti síðan sjálfur markið.
,,Það er alltaf gaman að fagna mörkum á nýstárlegan hátt og þessi hugmynd kviknaði fyrir leikinn. Hilmar Gunnarsson, aðalvallarkynnir Mosfellsbæjar, var vant við látinn og staðgengli hans veitti ekki af smá hjálp við þetta," sagði Magnús léttur í bragði.
Afturelding sigraði Gróttu einnig á heimavelli í síðustu viku og liðið er nú komið með tíu stig eftir erfiða byrjun.
,,Við vorum hundfúlir með byrjun okkar í deildinni en staðan lítur talsvert betur út núna en fyrir viku. Nú þarf að fylgja þessu eftir, það er stutt á milli leikja þessa dagana og okkar bíður hressandi rútuferð á Dalvík á miðvikudag. Stefnan er að sjálfsögðu sett á að halda áfram á þessu skriði og sigra þar," sagði Magnús.
Eins og margir vita er Magnús einnig ritstjóri og einn aðaldrifkraftur Fótbolta.net. Er hann ekki hræddur um að það fari af stað einhverjar samsæriskenningar útaf þessu vali á honum sem leikmanni umferðarinnar?
,,Ég held mig alveg til hlés þegar kemur að því að velja leikmann umferðarinnar í 2. deild. Ég kom ekki nálægt valinu í þessari umferð frekar en hingað til. Fólki er samt velkomið að vera með einhverjar samsæriskenningar. Það bara kryddar þetta," segir Magnús Már Einarsson, leikmaður sjöttu umferðar í 2. deild karla.
Sjá einnig:
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir