Leikmaður 9. umferðar: Helgi Ármannsson (KFR)
„Já ég verð að viðurkenna það að þetta kemur mér aðeins á óvart. Ég spilaði leikinn meiddur," segir Helgi Ármannsson, miðjumaður KFR, sem er leikmaður umferðarinnar í 2. deild.
KFR vann ótrúlegan 4-0 sigur á Aftureldingu sem fyrir leikinn var í öðru sæti deildarinnar. KFR hafði hinsvegar ekki hlotið stig.
KFR vann ótrúlegan 4-0 sigur á Aftureldingu sem fyrir leikinn var í öðru sæti deildarinnar. KFR hafði hinsvegar ekki hlotið stig.
„Stuðullinn á að við myndum sigra var 12,0. Maður hefði getað gert sér glaðan dag ef maður hefði tippað á sigur okkar."
Helgi segir að KFR hafi án efa spilað sinn langbesta leik á tímabilinu en viðurkennir að ofan á það hafi líklega verið um vanmat að ræða frá Mosfellsbæjarliðinu.
„Fyrir leikinn líkti þjálfarinn hjá þeim þessum leik við Aftureldingu - Fram í bikarnum.. Hann sagði að við værum í hlutverki Aftureldingar að þessu sinni. Ég held að þetta hafi því verið eitthvað vanmat hjá þeim. Þeir voru reyndar sterkari í byrjun þar til við skoruðum," segir Helgi.
Menn voru orðnir þungir á brún
KFR skoraði þrjú mörk á tíu mínútna kafla og var þremur mörkum yfir í hálfleik. Þegar liðið dettur í gírinn á það stórhættulegar skyndisóknir.
Þrátt fyrir dapra byrjun á mótinu segir Helgi að menn hafi ekki verið byrjaðir að leggja árar í bát.
„Menn voru vissulega orðnir þungir á brún en þessi úrslit lyfta okkur heldur betur upp. Menn eru bjartari eftir þennan sigur. Við viljum meina að við séum betri en taflan sýnir. Við höfum fengið einhver sex eða sjö mörk á okkur beint úr aukaspyrnum. Við viljum meina að við séum ekki slakasta liðið í deildinni."
Hefur leikið yfir 50 leiki
Fimm erlendir leikmenn voru í byrjunarliði KFR í leiknum en Mariusz Baranowski og markvörðurinn Maciej Majewski voru báðir frábærir.
„Markvörðurinn átti gott tímabil í fyrra þegar við fórum upp úr 3. deildinni. Hann er að stíga aftur upp núna," segir Helgi sem er á nítjánda aldursári en byrjaði að leika með KFR 2008. Hann hefur því mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur.
„Ég er búinn að leika yfir 50 leiki. Ég var ekki ánægður með frammistöðu mína í byrjun móts núna en meiðsli hafa sett strik í reikninginn. KFR er í samstarfi með ÍBV og ég hef einnig verið að leika með 2. flokknum hjá þeim. Það hjálpar manni að komast í gott leikform."
Stefnir hann hærra í boltanum? „Það getur vel verið, ef eitthvað býðst. Maður kannski skoðar sig um eftir þessa leiktíð. Maður sér bara til," segir Helgi Ármannsson.
Sjá einnig:
Leikmaður 8. umferðar - Þórður Birgisson (KF)
Leikmaður 7. umferðar - Rafn Markús Vilbergsson (Njarðvík)
Leikmaður 6. umferðar - Magnús Már Einarsson (Afturelding)
Leikmaður 5. umferðar - Elvar Freyr Arnþórsson (HK)
Leikmaður 4. umferðar - Sigurjón Fannar Sigurðsson (KF)
Leikmaður 3. umferðar - Bessi Víðisson (Dalvík/Reyni)
Leikmaður 2. umferðar - Brynjar Orri Bjarnason (KV)
Leikmaður 1. umferðar - Grétar Hjartarson (Reynir)
Athugasemdir