Enski boltinn rúllar af krafti og Leicester trónir á toppnum. Eins ótrúlegt og það hljómar.
Hér eru tíu leikmenn sem hafa komið á óvart á tímabilinu að mati Football 365 og við getum tekið undir þennan lista.
Vantar einhvern á listann? Láttu vita í ummælakerfinu.
Hér eru tíu leikmenn sem hafa komið á óvart á tímabilinu að mati Football 365 og við getum tekið undir þennan lista.
Vantar einhvern á listann? Láttu vita í ummælakerfinu.
10) Brendan Galloway (Everton) - Þessi 19 ára miðvörður hefur leyst stöðu vinstri bakvarðar í fjarveru Leighton Baines og gert það með miklum sóma.
9) Manuel Lanzini (West Ham) - Þessi 22 ára leikmaður virðist ákveðinn í að koma sér í enska boltann. Flaug undir radarinn þegar hann kom óvænt á láni frá Al Jazira í Furstadæmunum.
8) Nacho Monreal (Arsenal) - Margir héldu að hann ætti sér ekki framtíð hjá Arsenal en hann hefur verið eins og klettur og spilað hverja mínútu.
7) Bacary Sagna (Manchester City) - Lét lítið fyrir sér fara á fyrsta tímabili sínu hjá City en hefur svo sannarlega stigið upp og verið mjög öflugur í fjarveru Zabaleta.
6) Odion Ighalo (Watford) - Hjálpaði Watford að komast upp og hélt svo áfram þar sem frá var horfið í deild þeirra bestu.
5) Mousa Dembele (Tottenham) - Var í aukahlutverki á síðasta tímabili en hefur svo sannarlega stigið upp á þessu og skín skært í liði Spurs sem er að gera góða hluti.
4) Riyad Mahrez (Leicester) - Claudio Ranieri hefur fengið þennan hlaupagauk frá Alsír til að sýna sínar bestu hliðar. Skapar færi eins og enginn sé morgundagurinn.
3) Jesse Lingard (Manchester United) - Meiðsli hjá United gerðu það að verkum að Lingard fékk tækifæri og hann hefur ekki litið til baka síðan. Heilmikill bolti í þessum leikmanni.
2) Dele Alli (Tottenham) - Nýi strákurinn í bænum skaust ógnarfljótt á stjörnuhimininn. Kominn í enska landsliðshópinn og auðvelt að gleyma því að hann er bara 19 ára gamall.
Athugasemdir