Dani Alves, hægri bakvörður Barcelona, segist ætla að fara í enska boltann á næsta tímabili.
Hinn 31 árs gamli Alves ætlar að fara frá Barcelona þegar samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.
,,Ég ætla að fara til Englands á næsta ári," sagði Alves við O Globo í Brasilíu.
Hinn 31 árs gamli Alves ætlar að fara frá Barcelona þegar samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.
,,Ég ætla að fara til Englands á næsta ári," sagði Alves við O Globo í Brasilíu.
,,Ég ætla að spila í mekka fótboltans. Þetta verður síðasta árið mitt hjá Barcelona."
Alves kom til Barcelona frá Sevilla á 23 milljónir punda árið 2008.
Athugasemdir