Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 08. ágúst 2015 14:50
Fótbolti.net
Upptaka - Útvarpsþáttur dagsins í heild sinni
Mynd: Fótbolti.net
Það var mikill gestagangur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag þar sem Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon voru gestgjafar.

Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi

Sigurður Þórir Þorsteinsson, formaður KÞÍ, var fyrsti gestur og svo mætti Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Vals, í gervigrasumræðu. Verið er að leggja gervigras á Vodafone-völlinn.

Þrír leikmenn Pepsi-deildarinnar komu í heimsókn. Fyrst voru það FH-ingarnir Böðvar Böðvarsson, Böddi löpp, og Þórarinn Ingi Valdimarsson. Síðan kom ein af nýju stjörnunum í Pepsi-deildinni, Höskuldur Gunnlaugsson í Breiðabliki.

Sérfræðingar þáttarins voru á sínum stað, Guðmundur Steinarsson skoðaði Pepsi-deildina og Magnús Már Einarsson skoðaði 1. deildina.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner