Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 08. október 2017 12:32
Elvar Geir Magnússon
Þorgrímur Þráins lét slökkva á Scooter
Icelandair
Þorgrímur Þráinsson, ekki hrifinn af Scooter!
Þorgrímur Þráinsson, ekki hrifinn af Scooter!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allir nema Björn Bergmann Sigurðarson tóku þátt í æfingu íslenska landsliðsins í hádeginu en athygli vakti að hávær tónlist ómaði í upphafi æfingarinnar.

Um var að ræða teknó-tónlist frá Scooter sem lagðist misjafnlega vel í menn.

Þorgrímur Þráinsson, sem er í starfsliði landsliðsins, var sérstaklega ósáttur og lét slökkva á tónlistinni.

Hann sagði að það hefði verið Jóhann Berg Guðmundsson sem hafi borið ábyrgð á tónlistarvalinu en Jói ku vera mikill unnandi teknó-tónlistar.

Eins og venja er var létt yfir mönnum á æfingunni í dag en framundan er risastórt verkefni gegn Kosóvó annað kvöld þar sem íslenska landsliðið getur tryggt sér sæti á HM.



Fótbolti.net er með alla anga úti í umfjöllun um leikinn gegn Kosóvó og hægt er að fylgjast með bak við tjöldin á samskiptamiðlum okkar, þar á meðal Fotboltinet á Snapchat.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hérna

Staðan? Skoðaðu möguleikana í riðli Íslands

Smelltu hér til að sjá líkegt byrjunarlið

Með því að smella hér má hlusta á ítarlega upphitun fyrir leikinn úr útvarpsþættinum



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner