Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   fös 13. janúar 2017 15:22
Magnús Már Einarsson
Mkhitaryan deilir verðlaunum sínum með 5 ára strák
Mynd: Getty Images
Henrikh Mkhitaryan fékk í morgun verðlaun fyrir mark desember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Markið skoraði Mkhitaryan með glæsilegu sporðdrekasparki í 3-1 sigri á Sunderland. Mkhitaryan birti færslu á Twitter í dag þar sem hann sagðist vilja deila verðlaununum með hinum fimm ára gamla Bradley Lowery.

Bradley er sjálfur mikill stuðningsmaður Sunderland en hann er að glíma við krabbamein.

Bradley var sérstakur gestur á leik Sunderland og Chelsea í síðasta mánuði og þar skoraði hann framhjá Asmir Begovic í hálfleik. Það mark var valið mark mánaðarins hjá BBC.

Mkhitaryan vann mark mánaðarins í keppni ensku úrvalsdeildarinnar en hann hefur ákveðið að deila verðlaununum með Bradley.




Sjá einnig:
Sunderland lét draum rætast hjá veikum strák
Hjartnæmt myndband frá draumadegi Bradley hjá Sunderland
Veikur stuðningsmaður Sunderland fékk 28.000 jólakort
Athugasemdir
banner
banner
banner