banner
   fim 15. desember 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Sunderland lét draum rætast hjá veikum strák
Bradley og Jermain Defoe fyrir leikinn í gær.
Bradley og Jermain Defoe fyrir leikinn í gær.
Mynd: Getty Images
Hinn 5 ára gamli Bradley Lowery var í aðalhlutverki á Stadium of Light í gærkvöldi þegar Chelsea mætti Sunderland.

Chelsea vann leikinn 1-0 með marki Cesc Fabregas en áhorfendur voru hins vegar sammála um að Bradley væri maður kvöldsins.

Bradley er með sjaldgæfa tegund af krabbameini sem er komið á alvarlegt stig. Bradley er harður stuðningsmaður Sunderland og draumur hans hefur alltaf verið að skora mark á heimavelli liðsins.

Sá draumur rættist í gær þegar hann skoraði framhjá Asmir Begovic, varamarkverði Chelsea en myndband af því má sjá neðst í fréttinni.

Bradley var lukkupolli Sunderland í leiknum og leiddi liðið út á völlinn fyrir leik í gær. Hann fékk einnig myndir af sér með Jermain Defoe og Diego Costa fyrir leik.

Bradley hefur fengið mikinn stuðning í Englandi og hann á til að mynda mörg þúsund óopnuð jólakort sem hafa verið send til hans undanfarið.

Fyrr á tímabilinu gaf Sunderland samtals 200 þúsund pund í söfnun fyrir Bradley en félagið hefur einnig boðið honum og fjölskyldu hans að fara í Harry Potter World í Bandaríkjunum yfir jólin.

Smelltu hér til að sjá Twitter síðu Bradley



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner