Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fös 16. desember 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Hjartnæmt myndband frá draumadegi Bradley hjá Sunderland
Bradley fékk m.a að hitta leikmenn Chelsea.
Bradley fékk m.a að hitta leikmenn Chelsea.
Mynd: Getty Images
Bradley Lowery hefur svo sannarlega slegið í gegn á undanförnum dögum. Bradley er fimm ára strákur sem berst við ansi slæmt krabbamein og gæti það farið svo að hann verði ei meðal okkar á næstu mánuðum.

Hann fékk draumadaginn sem uppfylltan er Sunderland og Chelsea mættust á Leikvangi ljóssins. Þá fékk hann að hitta Jermaine Defoe sem er uppáhalds leikmaðurinn sinn. Bradley fékk svo því að hita upp með liðinu áður en hann fékk að hitta leikmenn Chelsea. Strákurinn skoraði svo framhjá Asmir Begovic, varamarkmanni liðsins.

Bradley hefur gjörsamlega slegið í gegn og hefur hann fengið tugi þúsunda jólakorta frá aðdáendum um heim allan.

Hér að neðan má sjá myndband af deginum sérstaka hjá þessum sérstaka dreng. Varað er við tárum sem geta myndast við að horfa á myndbandið.




Sunderland lét draum rætast hjá veikum strák
Athugasemdir
banner
banner