Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 13:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
PSG ekki búið að bjóða í Rooney
Mynd: Getty Images
Leonardo, yfirmaður íþróttamála hjá PSG, segir að félagið hafi ekki lagt fram tilboð í Wayne Rooney framherja Manchester United.

Rooney hefur verið sterklega orðaður við PSG en Leonardo hefur neitað sögusögnum um að hann sé á leið til franska félagsins.

Leonardo segir einnig rangt að PSG sé búið að bjóða í Cristiano Ronaldo og Edinson Cavani.

,,Varðandi Ronaldo þá er ekkert tilboð. Ég hef heldur ekkert heyrt um Rooney eða Cavani, sagði Leonardo.

,,Ég útiloka ekki að fá stór nöfn en einungis ef það hentar. Við viljum hafa stóran hóp sem getur mannað allar stöður svo við lendum ekki í sömu vandræðum og á miðjunni í janúar þegar mikil meiðsli og leikbönn komu upp."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner