Basel 1-0 Grasshopper
1-0 Luca Zuffi ('6)
Rautt spjald Patrick Olsen, Grasshopper ('88)
1-0 Luca Zuffi ('6)
Rautt spjald Patrick Olsen, Grasshopper ('88)
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði Grasshopper sem lék við topplið Basel í Sviss í kvöld.
Luca Zuffi skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Basel er eftir leikinn með 20 stiga forystu á toppi svissnensku deildarinnar.
Rúnar Már sem var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Kósóvó, spilaði í 79 mínútur í kvöld.
Grasshopper, lið Rúnars er í 8. sæti deildarinnar af tíu liðum, þremur stigum frá fallsæti.
Athugasemdir