Nicky Bailey, miðjumaður Sutton United, segist borða á McDonald's fyrir alla leiki.
Bailey er að fara að spila stórleik í kvöld en þá fær Sutton United stórlið Arsenal í heimsókn í enska bikarnum.
Bailey er að fara að spila stórleik í kvöld en þá fær Sutton United stórlið Arsenal í heimsókn í enska bikarnum.
„Ég held að ég hafi aldrei borðað salat á ævinni eða grænmeti yfir höfuð. Þetta hefur samt alltaf virkað fyrir mig," sagði hinn 32 ára gamli Bailey en hann hefur áður leikið í Championship deildinni með Middlesbrough og Millwall.
„Maturinn sem ég borða fyrir leiki er alltaf frá McDonald's - níu kjúklinga naggar."
„Þegar ég var yngri þá reyndi mamma mín að láta mig éta þetta græna en ég ældi bara."
Sjá einnig:
Arsenal gæti mætt 127 kílóa markverði
Athugasemdir