Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mið 24. september 2014 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Segir að Van Gaal hafi engar mætur á Shaw
Luke Shaw bíður enn eftir tækifærinu á Old Trafford.
Luke Shaw bíður enn eftir tækifærinu á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Rene Meulensteen, fyrrum aðstoðarþjálfari Manchester United, telur að Louis van Gaal sé enginn aðdáandi vinstri bakvarðarins Luke Shaw.

Shaw var keyptur til United fyrir um það bil 30 milljónir punda frá Southampton þrátt fyrir að vera einungis 19 ára gamall, en hann hefur hins vegar enn ekki spilað keppnisleik fyrir félagið.

Van Gaal gagnrýndi Shaw fyrir að vera ekki í nægilega góðu standi, en hann hefur glímt við meiðsli. Þá eru kaupin á þeim Daley Blind og Marcos Rojo, sem báðir geta spilað í vinstri bakverði, ekki að hjálpa Shaw.

,,Van Gaal virðist ekki kunna að meta Shaw. Það kemur mér virkilega á óvart," sagði Meulensteen um samlanda sinn.

,,Hann hlýtur að hafa fengið að vita að félagið ætlaði að bjóða í Shaw, því hann er ungur og upprennandi leikmaður. Hann er með góðan vinstri fót og mikinn hraða."

,,Hann á enn margt eftir ólært til að komast í Man Utd klassa, en hann er frábært efni. En Van Gaal fékk Rojo í liðið sem er slæmt fyrir Shaw."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner