Lionel Messi, leikmaður Barcelona, borðar pizzu og drekkur Sprite eftir alla leiki liðsins.
Spænska dagblaðið Libertad Digital greinir frá þessu í dag en blaðið náði að ræna lista yfir þá máltíð sem leikmenn Barcelona vilja fá eftir leiki. Leikmennirnir fá matinn ýmist inn í klefa eða í liðsrútunni eftir leik.

Margir leikmenn fá sér pizzu eftir leiki en þar má einnig nefna leikmenn eins og Sergio Busquets, Andres Iniesta, Pedro, Dani Alves, Jordi Alba, Neymar og Luis Suarez.
Þýski markvörðurinn Marc-Andre ter Stegen vill fá sushi og samloku með súkkulaðismjöri.
Ivan Rakitic fær sér sushi og ávexti og markvörðurinn Claudio Bravo fær sér pasta og ávexti svo eitthvað sé nefnt.
Hér að neðan má sjá listann sem birtist í Libertad Digital í dag. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Athugasemdir