Ásmundur Arnarsson, þjálfari ÍBV, var hundfúll út í sína menn eftir 4-1 tap gegn KR í undanúrslitum bikarsins í vesturbænum í kvöld.
Ásmundur segir að sínir menn hafi kastað inn hvíta handklæðinu og gefist upp við hið minnsta mótlæti.
Ásmundur segir að sínir menn hafi kastað inn hvíta handklæðinu og gefist upp við hið minnsta mótlæti.
Lestu um leikinn: KR 4 - 1 ÍBV
„Ég er gríðarlega svekktur hvernig liðið bregst við, við lentum auðvitað í mótlæti, fyrirliðinn fer út af og liðið riðlast aðeins. En liðið í heild bregst illa við, við fáum á okkur mark, menn missa trúna, menn hætta að leggja sig fram, hætta að berjast, fara að benda á hvorn annan og svekkja sig á öllum hlutum. Það gengur bara ekkert upp," sagði Ásmundur eftir leikinn.
„Eitt mark og jafnvel þó það séu tvö mörk, það er nóg eftir af leiknum, það verður að halda áfram."
„Það voru margar martraðir í þessu."
Viðtalið við Ásmund má sjá í heild sinni hérna að ofan.
Athugasemdir