Chris Wilder ráðinn til Sheffield í þriðja sinn (Staðfest)
Chris Wilder hefur verið ráðinn aftur sem aðalþjálfari Sheffield United í Championship deildinni eftir nokkra mánuði án starfs. Þetta er í þriðja sinn sem hann er ráðinn í starfið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Chris Wilder hefur verið ráðinn aftur sem aðalþjálfari Sheffield United í Championship deildinni eftir nokkra mánuði án starfs. Þetta er í þriðja sinn sem hann er ráðinn í starfið.
Franski varnarmaðurinn Samuel Umtiti er búinn að leggja takkaskóna á hilluna eftir ótrúlega meiðslahrjáðan fótboltaferil.
Spænski stjórinn Ruben Selles hefur verið látinn taka poka sinn hjá Sheffield United eftir aðeins fimm leiki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
David Datro Fofana er genginn til liðs við Fatih Karagümrük frá Chelsea með kaupmöguleika. Fofana var ekki inn í myndinni hjá Enzo Maresca en hann var orðaður við Preston og Charlton á gluggadeginum.
Þór er komið upp í Bestu deild karla eftir að hafa unnið Þrótt, 2-1, í lokaumferð Lengjudeildarinnar í Laugardalnum í dag. Selfoss er fallið eftir 4-1 tap gegn Keflavíkingum. Njarðvík, Þróttur, HK og Keflavík fara öll í umspil.
Crystal Palace hefur lánað enska vængmanninn Jesurun Rak-Sakyi til tyrkneska félagsins Caykur Rizespor út tímabilið.
Chelsea hefur gengið frá samningi við sóknarmanninn Emanuel Emegha frá Strasbourg í Frakklandi. Leikmaðurinn mun skipta yfir til Chelsea árið 2026, en ekki kemur fram hvort það verði í janúar eða næsta sumar.
Tyrkneska félagið Trabzonspor er búið að staðfesta félagaskipti markvarðarins André Onana.
Varnarmaðurinn Aymeric Laporte er kominn aftur heim til Athletic Bilbao eftir sjö og hálfs árs fjarveru.
Bournemouth hefur lánað franska miðjumanninn Romain Faivre til sádi-arabíska félagsins Al Taawoun út tímabilið.
Franski miðjumaðurinn Yacine Adli er genginn til liðs við Al Shabab í Sádi-Arabíu en hann kemur til félagsins frá AC Milan.
Enski miðjumaðurinn Josh Brownhill var kynntur hjá sádi-arabíska félaginu Al Shabab í kvöld, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.
Sádi-arabíska félagið Al Ittihad, sem er í eigu PIF (ríkissjóðs Sádi-Arabíu), hefur nælt í serbneska miðvörðinn Jan-Carlo Simic frá Anderlecht í Belgíu.
Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen skrifaði í dag undir tveggja ára samning við þýska félagið Wolfsburg.
Pólski markvörðurinn Lukasz Fabianski er mættur aftur til West Ham aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa yfirgefið félagið.
FH hefur staðfest að miðvörðurinn Arna Eiríksdóttir hafi verið seld til norska meistaraliðsins Vålerenga. Hún er annar leikmaðurinn sem FH selur í atvinnumennsku með stuttu millibili en Elísa Lana Sigurjónsdóttir var nýverið seld til Kristianstad í Svíþjóð.
Nottingham Forest hefur tilkynnt það að Ange Postecoglou sé tekinn sem nýr stjóri liðsins. Hann tekur við starfinu af Nuno Espirito Santo sem var látinn fara seint í gærkvöldi. Nuno náði mögnuðum árangri með Forest en lenti upp á kant við Evangelos Marinakis, eiganda félagsins, og Edu Gaspar, sem er nýr yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Nuno Espirito Santo hefur verið rekinn sem stjóri Nottingham Forest samkvæmt heimildum Sky Sports. Espirito Santo sagði í síðasta mánuði að samband hans og Evangelos Marinakis, eiganda Nottingham Forest, hafi ekki verið eins gott og á síðustu leiktíð.
Kasper Hjulmand hefur verið ráðinn nýr stjóri þýska félagsins Bayer Leverkusen. Hann tekur við starfinu af Erik ten Hag. Leverkusen staðfesti ráðningu hans í dag en hann skrifar undir samning sem gildir til sumarsins 2027.
Franski varnarmaðurinn Presnel Kimpembe er farinn frá Paris Saint-Germain og genginn í raðir Qatar Sports Club í Katar.