Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24392 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.08.2025, 20:45

Magassa til West Ham (Staðfest) - „Ekki erfitt að segja já"

Soungoutou Magassa er genginn til liðs við West Ham frá Mónakó. Kaupverðið er rúmlelga 17 milljónir punda. Magassa er varnarsinnaður miðjumaður en hann getur einnig leyst stöðu miðvarðar. Hann er 21 árs gamall og er landsliðsmaður U21 landsliðs Frakklands. <i>„West Ham er mjög stórt félag með langa sögu á Englandi, með marga aðdáendur og mjög stóran leikvang. Það var ekki erfitt að segja já,"</i> sagði Magassa.

FRÉTTIR29.08.2025, 16:19

Xavi Simons í Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur staðfest að hollenski landsliðsmaðurinn Xavi Simons sé genginn í raðir félagsins. Hann kemur frá RB Leipzig í Þýskalandi og kostar 60 milljónir evra. Sú upphæð gæti síðar meira hækkað í 70 milljónir evra.

FRÉTTIR29.08.2025, 15:00

Liverpool lánar ungan miðjumann til Ajax (Staðfest)

Ajax hefur staðfest að félagið hafi fengið miðjumanninn James McConnell á láni frá Liverpool. Á sama tíma og það var tilkynnt, þá sagði Liverpool frá því að leikmaðurinn hefði skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2030.

FRÉTTIR29.08.2025, 13:14

Spænskur landsliðsmaður í Crystal Palace (Staðfest)

Crystal Palace hefur staðfest kaup á Yeremy Pino en hann kemur til félagsins frá Villarreal. Palace borgar 21 milljón punda fyrir Pino og gæti sú upphæð hækkað í 26 milljónir punda síðar meir.

FRÉTTIR29.08.2025, 10:19

Sandra María seld til Köln (Staðfest)

Landsliðskonan Sandra María Jessen hefur gengið í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln frá Þór/KA. <i>„Sandra María hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili og færir félagið henni hér með bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag til liðsins, félagsins og knattspyrnunnar á Akureyri,"</I> segir í tilkynningu Þórs/KA.

FRÉTTIR29.08.2025, 09:54

Fram fékk markvörð með undanþágu frá FIFA (Staðfest)

Fram hefur samið við markvörðinn Ashley Brown Orkus. Hún kemur til félagsins á undanþágu þar sem báðir markverðir liðsins eru núna meiddir. Elaina LaMacchia, sem hafði verið einn besti markvörður Bestu deildarinnar, meiddist illa fyrr í mánuðinum í leik gegn FHL. Meiðsli hennar eru mjög alvarleg og hún verður lengi frá.

FRÉTTIR29.08.2025, 08:35

Mateus Fernandes til West Ham (Staðfest)

West Ham United hefur staðfest kaup á portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes sem er keyptur á um 40 milljónir punda frá Southampton. Hann er þriðji dýrasti leikmaður í sögu félagsins, á eftir Sebastien Haller (45 milljónir punda) og Lucas Paqueta (51).

FRÉTTIR29.08.2025, 07:55

Mourinho rekinn frá Fenerbahce (Staðfest)

Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur tilkynnt að það sé búið að reka Jose Mourinho. <i>„Við þökkum honum fyrir hans starf fyrir félagið og óskum honum velgengni í næstu verkefnum,"</i> segir í yfirlýsingu Fenerbahce. Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum hefur samband Mourinho við stjórn Fenerbahce verið eldfimt í allt sumar og hann gagnrýnt stefnu félagsins.

FRÉTTIR28.08.2025, 22:53

Solskjær rekinn eftir tap gegn Lausanne (Staðfest)

Ole Gunnar Solskjær hefur verið rekinn frá tyrkneska stórveldinu Besiktas eftir rúmlega hálft ár í starfi. Hann tók við Besiktas í janúar og náði flottum árangri með liðið í tyrknesku deildinni.

FRÉTTIR28.08.2025, 11:00

Krejcí orðinn úlfur (Staðfest) - Fyrsti Tékkinn í sögu félagsins

Varnarmaðurinn Ladislav Krejcí er genginn í raðir Wolves frá Girona. Þessi 26 ára miðvörður, sem getur einnig leikið á miðjunni, kemur á lánssamningi en samningur til 2030 verður varanlegur þegar ákveðin skilyrði verða uppfyllt. Krejcí er tékkneskur landsliðsmaður og er fyrsti tékkneski leikmaðurinn í sögu Wolves. Hann lék eitt tímabil með Girona og spilaði 25 leiki í öllum keppnum þegar liðið hafnaði í sextánda sæti í La Liga. Þar áður var hann fimm ár hjá Spörtu í Prag þar sem hann vann tvo deildarmeistaratitla. <i>„Ég er virkilega spenntur. Enska úrvalsdeildin er besta deild heims. Þetta er mikið afrek fyrir mig. Mín fyrstu kynni af félaginu hafa verið stórkostleg,"</I> segir Krejcí. Úlfarnir hafa fyrr í sumar fengið baverðina Jackson Tchatchoua og David Möller Wolfe ásamt sóknarleikmönnunum Fer Lopez og Jhon Arias. Úlfarnir hafa tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark.

FRÉTTIR27.08.2025, 09:30

Danny Ings í Sheffield United (Staðfest)

Enski sóknarmaðurinn Danny Ings er búinn að skrifa undir samning við Sheffield United. Ings hefur verið að æfa með Sheffield United að undanförnu en hann skrifar undir eins árs samning við félagið

FRÉTTIR27.08.2025, 06:00

Crystal Palace lánar Franca til Vasco da Gama (Staðfest)

Matheus Franca er genginn til liðs við Vasco da Gama á láni frá Crystal Palace út tímabilið. Franca er 21 árs gamall sóknarsinnaður miðjumaður. Hann gekk til liðs við félagið frá Flamengo árið 2023 fyrir 26 milljónir punda.

FRÉTTIR26.08.2025, 15:30

Farinn til Leverkusen eftir átján ár hjá Real Madrid (Staðfest)

Bayer Leverkusen krækti í dag í spænska bakvörðinn Lucas Vazquez. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Real Madrid og skrifar undir tveggja ára samning við Leverkusen. Vazquez hefur verið á mála hjá Real síðan 2007 þegar hann kom inn í unglingaliðið. Hann fór í gegnum C- og B-lið Real Madrid og var á láni hjá Espanyol áður en hann kom inn í aðalliðshópinn, þá orðinn 24 ára gamall. Vazquez, sem er 34 ára Spánverji, getur bæði spilað bakvörð og á kantinum. Hann vann spænsku deildina fjórum sinnum með Real og Meistaradeildina fimm sinum. Hann á að fylla í skarðið sem Jeremie Frimpong skildi eftir með félagaskiptum sínum til Liverpool í sumar og mun berjast við Arthur frá Brasilíu um sæti í byrjunarliðinu.

FRÉTTIR26.08.2025, 14:56

Nemanja Matic til Sassuolo (Staðfest)

Nemanja Matic, fyrrum leikmaður Manchester United og Chelsea, er genginn í raðir ítalska félagsins Sassuolo. Hann kemur á frjálsri sölu frá Lyon þar sem samningi hans var rift á dögunum. Hann er 37 ára serbneskur miðjumaður sem hefur einnig spilað með Benfica, Rennes og Roma á sínum ferli.

FRÉTTIR26.08.2025, 14:00

Chukwuemeka til Dortmund (Staðfest)

Chelsea hefur staðfest að miðjumaðurinn Carney Chukwuemeka sé kominn til þýska félagsins Borussia Dortmund á samningi til 2030. Þessi 21 árs gamli leikmaður var seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Dortmund. Chukwuemeka lék aðeins 32 leiki fyrir Chelsea eftir að hann kom til félagsins frá Aston Villa 2022 en hann skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu.

FRÉTTIR25.08.2025, 19:15

Dibling kominn til Everton (Staðfest)

Everton er búið að festa kaup á kantmanninum efnilega Tyler Dibling sem kemur úr röðum Southampton fyrir 42 milljónir punda.

FRÉTTIR25.08.2025, 18:05

James Justin til Leeds (Staðfest)

Leeds United er búið að ganga frá kaupum á bakverðinum James Justin sem kemur úr röðum Leicester City.

FRÉTTIR25.08.2025, 14:19

Asllani til Torino (Staðfest)

Albanski landsliðsmaðurinn Kristjan Asllani er kominn til Torino frá Inter. Þessi miðjumaður sem fæddur er 2002 fer á láni út tímabilið en Torino er með ákvæði um að geta keypt hann. Inter mætir Torino í kvöld en Asllani mun ekki spila þann leik.

FRÉTTIR25.08.2025, 12:39

Guðlaugur Victor í Horsens (Staðfest)

Horsens í Danmörku hefur staðfest að Guðlaugur Victor Pálsson sé genginn í raðir félagsins. Guðlaugur Victor rifti í gær samningi sínum við enska félagið Plymouth.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.