FRÉTTIR11.07.2025, 08:54
Ísak Snær Þorvaldsson er genginn í raðir danska félagsins Lyngby á láni frá norska félaginu Rosenborg út komandi tímabil og kaupmöguleiki fylgir lánssamningnum.
Ísak var ekki að fá nægilega margar mínútur hjá Rosenborg og leitaði því annað. Lyngby er mikið Íslendingafélag sem féll úr úrvalsdeildinni í vor og ætlar sér aftur upp um deild.
Ísak, sem er sóknarmaður, verður í treyju númer tíu hjá Lyngby. Hann æfði í fyrsta sinn með nýum liðsfélögum í dag.
FRÉTTIR10.07.2025, 20:42
Mohammed Kudus er genginn til liðs við Tottenham frá West Ham. Hann skrifar undir sex ára samning.
Tottenham borgar 55 milljónir punda fyrir þennan 24 ára gamla landsliðsmann Gana.
FRÉTTIR10.07.2025, 16:11
Sunderland hefur gengið frá kaupum á Simon Adingra frá Brighotn. Adingra er 23 ára Fílbeinstrendingur sem skrifar undir fimm ára samning.
Kaupverðir er sagt vera 18 milljónir punda og það getur hækkað um 2,5 milljónir punda með árangurstengdum gjöldum.
Adingra er kantmaður sem var keyptur til Brighton frá Nordsjælland og kostaði um átta milljónir punda. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 33 leikjum en oftar en ekki sem varamaður. Alls kom hann að sjö mörkum með beinum hætti.
FRÉTTIR10.07.2025, 15:02
Ciro Immobile, fyrrum fyrirliði Lazio, er mættur aftur í ítölsku A-deildina en hann er genginn í raðir Bologna eftir að hafa verið eitt ár hjá Besiktas í Tyrklandi.
Immobile er 35 ára sóknarmaður sem á 57 landsleiki fyrir Ítalíu.
Hann skoraði 19 mörk í öllum keppnum fyrir Besiktas en liðið hafnaði í fjórða sæti.
FRÉTTIR10.07.2025, 12:30
Jordan Henderson hefur fengið samningi sínum við Ajax rift. Hann átti ár eftir af samningnum en óskaði eftir að fá að fara og fékk þá ósk uppfyllta.
Henderson kom til Ajax frá Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu í janúar í fyrra og var því í eitt og hálft ár hjá hollenska stórveldinu.
<i>„Ég vil koma á framfæri óendanlega þakklæti til allra sem tengjast Ajax fyrir að gefa mér tækifæri til að vera fulltrúi þessarar ótrúlegu stofnunar undanfarin ár. Að spila fyrir þetta félag var heiður út af fyrir sig. Að hafa fengið þau forréttindi að vera fyrirliði þess var enn meiri. Eina eftirsjá mín er að við náðum ekki meiri árangri fyrir þessa frábæru stuðningsmenn. Þeir eiga skilið að fagna stórum titlum aftur og ég er viss um að sá tími kemur fljótlega,"</I> segir Henderson í yfirlýsingu í kjölfar tíðandanna.
FRÉTTIR10.07.2025, 12:15
Manchester United hefur gengið frá kaupum á framherjanum Enzo Kana-Biyik frá Le Havre.
Hann rann út á samningi í síðasta mánuði en United þarf að greiða uppeldisbætur til franska félagsins.
FRÉTTIR10.07.2025, 11:22
Arsenal hefur keypt danska miðjumanninn Christian Nörgaard frá Brentford fyrir 15 milljónir punda.
Þessi 31 árs leikmaður gerir tveggja ára samning, með möguleika á ári til viðbótar.
FRÉTTIR10.07.2025, 06:00
Nottingham Forest er búið að selja kantmanninn Ramón Sosa til brasilíska stórveldisins Palmeiras, þar sem hann á að hjálpa til við að fylla í skarðið sem Estevao skilur eftir sig með félagaskiptum sínum til Chelsea.
FRÉTTIR09.07.2025, 23:20
Það eru fregnir úr herbúðum Úlfanna þar sem kantmaðurinn Chiquinho hefur verið seldur til FC Alverca, félag í eigu Vinícius Júnior, í Portúgal.
FRÉTTIR09.07.2025, 17:27
Sunderland hefur gengið frá kaupum á vængmanninum Chemsdine Talbi frá Club Brugge en verðmiðinn gæti náð 19,5 milljónum punda.
FRÉTTIR09.07.2025, 15:14
Everton hefur gengið frá kaupum á franska framherjanum Thierno Barry frá Villarreal fyrir 27 milljónir punda.
FRÉTTIR09.07.2025, 06:00
Aníta Björg Sölvadóttir er gengin aftur í raðir Fjölnis frá KR. Þetta kom fram í tilkynningu Fjölnis í gær.
FRÉTTIR08.07.2025, 17:30
Norwich, sem endaði í 13. sæti ensku Championship deildarinnar, hefur fest kaup á danska landsliðsmanninum Mathias Kvistgaarden frá Bröndby.
Hann er sagður kosta 6,9 milljónir punda en sú upphæð getur hækkað með árangurstengdum gjöldum og svo fær Bröndby prósentu af næstu sölu. Þetta gerir Kvistgaarden að þriðju stærstu sölu Bröndby á eftir Yuito Suzuki til Freiburg í sumar og sölunni á Daniel Agger til Liverpool árið 2025.
Kvistgaarden er 23 ára framherji sem soraði 23 mörk í 38 leikjum með Bröndby, ásamt því að leggja upp sjö mörk.
FRÉTTIR08.07.2025, 16:16
Sænski landsliðsmaðurinn Gabriel Gudmundsson er genginn í raðir nýliða Leeds United í ensku úrvalsdeildinni.
Gudmundsson er 26 ára vinstri bakvörður og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Leeds en hann er keyptur á 10 milljónir punda frá Lille í Frakklandi.
FRÉTTIR08.07.2025, 16:14
Gabriel Heinze, fyrrum leikmaður Manchester United, er tekinn við starfi hjá Arsenal. Hann aðstoðar þar spænska stjórann Mikel Arteta.
Hann kemur inn í teymið í stað Carlos Cuesta sem tók við þjálfarastarfinu hjá Parma á Ítalíu.
Heinze og Arteta þekkjast vel en þeir spiluðu saman hjá PSG í Frakklandi á sínum tíma.
FRÉTTIR08.07.2025, 14:30
Sunderland hefur gengið frá kaupum á Reinildo Mandava frá Atletico Madrid. Mandava skrifar undir tveggja ára samning við Sunderland sem komst upp úr Championship deildinni í vor og verður því í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Reinildo kom til Atletico árið 2022 og lék 99 leiki í öllum keppnum fyrir félagið, þar af 32 á síðasta tímabili þar sem hann spilaði reglulega í Meistaradeildinni og La Liga.
Síðasti leikur hans fyrir Atletico var gegn PSG á HM félagsliða. Hann kemur til Sunderland á frjálsri sölu þar sem hann varð samningslaus í lok síðasta mánaðar.
FRÉTTIR08.07.2025, 14:00
Tottenham hefur staðfest að framherjinn Alejo Veliz sé farinn á láni til Rosario Central í Argentínu og verður þar út árið hið minnsta.
Veliz er Argentínumaður sem var keyptur frá Rosario árið 2023. Talað var um að hann hefði kostað 13 milljónir punda þegar hann kom frá Argentínu.
Hann spilaði átta leiki á sínu fyrsta hálfa tímabili hjá Tottenham og skoraði eitt mark, gegn Brighton.
Hann kláraði það tímabil hjá Sevilla og lék svo á síðasta tímabili með Espanyol.
FRÉTTIR08.07.2025, 12:05
Kristian Nökkvi Hlynsson er genginn í raðir hollenska félagsins Twente en hann er keyptur frá Ajax þar sem hann var í rúm fimm ár. Landsliðsmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við Twente.
Hann var á láni hjá Sparta Rotterdam seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa verið í meiðslum og litlu hlutverki fyrri hluta tímabilsins hjá Ajax. Hann lék vel hjá Spörtu en kom svo til baka Ajax og var þá ekki inn í myndinni. Hann var settur til hliðar, bannað að æfa með aðalliðinu og er núna rúmri viku seinna kominn í nýtt félag. Hjá Ajax skoraði Kristian tíu mörk í 45 leikum.
Kristian, sem er 21 árs, er mættur til Austurríkis þar sem Twente undirbýr sig fyrir komandi tímabil.
<i>„Ég hlakka til að kynnast leikmönnum og starfsfólkinu á næstu dögum. Ég sé þessi félagaskipti sem mjög gott skref fyrir mig. Twente er stórt félag og hefur frábæra stuðningsmenn. Ég vil sýna mig hér. Fyrir mig var mikilvægt að ganga til liðs við nýtt félag snemma í sumar til að geta tekið þátt í undirbúningi fyrir tímabilið eins vel og mögulegt er,"</I> segir Kristian í tilkynningu félagsins.
<i>„Kristian er kraftmikill sóknarmiðjumaður sem hefur sýnt að hann hefur hæfileika til að skora mörk. Hann er leikmaður með frábært hugarfar. Við erum fullviss um að hann geti orðið afgerandi leikmaður hjá FC Twente,"</I> segir Jan Strauer hjá Twente.
Ajax endaði í 2. sæti hollensku deildarinnar í fyrra, Twente endaði í 6. sæti og Sparta endaði í 12. sæti. Twente fór í umspilið um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á liðinni leiktíð en missti af Evrópusæti fyrir komandi leiktíð.
FRÉTTIR08.07.2025, 09:09
Tottenham hefur keypt japanska varnarmanninn Kota Takai frá Kawasaki Frontale í heimalandi hans, fyrir 5 milljónir punda.
Takai er 20 ára og hefur skrifað undir fimm ára samning.
Hann á fjóra landsleiki fyrir Japan en hann lék sinn fyrsta landsleik í undankeppni HM, gegn Kína, í september.
FRÉTTIR07.07.2025, 23:30
Edu Gaspar hefur verið ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest en það er ný staða hjá félaginu.
Edu var áður hjá Arsenal í því starfi. Hann er 47 ára Brasilíumaður en á leikmannaferlinum lék hann með Corinthians í heimalandinu, Arsenal og spænska liðinu Valencia.