Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24395 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.07.2025, 18:55

Boscagli til Brighton (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur samið við franska miðvörðinn Olivier Boscagli en hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við PSV rann út á dögunum.

FRÉTTIR02.07.2025, 16:00

Diarra sá dýrasti sem Sunderland hefur keypt (Staðfest)

Sunderland hefur gengið frá kaupum á senegalska miðjumanninum Habib Diarra en hann er keyptur frá Strasbourg fyrir um 30 milljónir punda, sem er félagsmet. Þessi 21 árs leikmaður skoraði í landsleik gegn Englandi í júní en hann hefur skrifað undir fimm ára samning við Sunderland.

FRÉTTIR02.07.2025, 14:51

Loum Tchaouna til Burnley (Staðfest)

Burnley hefur fengið franska kantmanninn Loum Tchaouna frá Lazio. Tchaouna, sem er 21 árs gamall, hjálpaði Frakklandi að komast í undanúrslit EM U21 í sumar.

FRÉTTIR02.07.2025, 14:40

Pedro kominn til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur keypt Brasilíumanninn Joao Pedro fyrir 60 milljónir punda og hann gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið í 8-liða úrslitum HM félagsliða um komandi helgi. Chelsea á leik gegn Palmeiras.

FRÉTTIR02.07.2025, 11:48

Van Bronckhorst til Liverpool (Staðfest)

Liverpool tilkynnti um komu tveggja þjálfara í þjálfarateymi Arne Slot í dag. Giovanni van Bronckhorst kemur inn sem aðstoðarþjálfari Slot, en sú staða var laus eftir að John Heitinga var ráðinn til Ajax í vor. Van Bronckhorst er fyrrum landsliðsfyrirliði Hollands og lék m.a. með Barcelona og Arsenal á sínum ferli. Hann var síðast aðalþjálfari Besiktas en var látinn fara í vetur.

FRÉTTIR02.07.2025, 09:38

Liverpool hefur selt Quansah til Leverkusen (Staðfest)

Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur keypt varnarmanninn Jarell Quansah frá Liverpool og kaupverðið gæti náð 35 milljónum punda. Þessi 22 ára leikmaður fékk ekki mörg tækifæri hjá Liverpool undir stjórn Arne Slot á síðasta tímabili. Miðvörðurinn er uppalinn hjá Liverpool og byrjaði fjóra úrvalsdeildarleiki á síðasta tímabili, alls fékk hann þrettán byrjunarliðsleiki í öllum keppnum.

FRÉTTIR02.07.2025, 08:11

Karólína Lea keypt til Inter (Staðfest)

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið keypt til Inter Milan frá Bayern München. Ítalska félagið staðfestir þetta núna í morgunsárið.

FRÉTTIR02.07.2025, 06:00

Fyrrum markvörður Liverpool heim til Wrexham (Staðfest)

Wrexham heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Championship deildinni á næstu leiktíð. Félagið hefur nælt í velska markvörðinn Danny Ward en hann er fæddur í Wrexham. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR01.07.2025, 22:32

Giroud orðinn liðsfélagi Hákonar (Staðfest)

Franski framherjinn Olivier Giroud er kominn til Frakklands en hann mun spila fyrir Lille í frönsku deildinni á næstu leiktíð. Hann skrifaði undir eins árs samning. Hann var með LAFC á HM félagsliða en liðið féll úr leik í riðlakeppninni og hann yfirgaf félagið í kjölfarið eftir eins árs dvöl í Bandaríkjunum.

FRÉTTIR01.07.2025, 19:00

Ansu Fati til Mónakó (Staðfest)

Ansu Fati er genginn ti lliðs við Mónakó frá Barcelona á láni út tímabilið. Mónakó fær möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið. Fati er 22 ára gamall og þótti einn efnilegasti leikmaður heims fyrir nokkrum árum en meiðslavandræði hafa sett strik í reikninginn. Hann spilaði 27 leiki og skoraði fjögur mörk fyrir Brighton á láni á síðasta tímabili.

FRÉTTIR01.07.2025, 17:31

Bornauw til Leeds (Staðfest) - Firpo farinn

Leeds hefur keypt varnarmanninn Sebastiaan Bornauw frá Wolfsburg fyrir 5,1 milljón punda. Þessi 26 ára leikmaður er þriðji leikmaðurinn sem Leeds fær eftir að hafa komist upp í ensku úrvalsdeildina en áður hafði félagið sótt Lukas Nmecha og Jaka Bijol. Fyrr í dag hafði Leeds staðfest að vinstri bakvörðurinn Junior Firpo væri farinn frá félaginu. Samningur hans er runninn út og hann mun semja við Real Betis. Bornauw er belgískur landsliðsmaður sem lék áður fyrir Anderlecht og Köln. Hann lék með Wolfsburg í Meistaradeildinni. Hann er miðvörður sem spilaði fimmán leiki í Bundesligunni á síðasta tímabili og skoraði tvívegis. Leeds hefur keppni í ensku úrvalsdeildinni á heimavelli gegn Everton mánudaginn 18. ágúst.

FRÉTTIR01.07.2025, 15:00

Strand Larsen hjá Úlfunum til 2029 (Staðfest)

Úlfarnir hafa staðfest að norski sóknarleikmaðurinn Jörgen Strand Larsen hafi skrifað undir samning til ársins 2029. Félagið nýtti sér ákvæði um að kaupa hann frá Celta Vigo fyrir 23 milljónir punda eftir góða frammistöðu hans á láni á síðasta tímabili en hann skoraði 14 úrvalsdeildarmörk. Þegar stjörnuleikmaðurinn Matheus Cunha, sem er nú genginn í raðir Manchester United, fór í fjögurra leikja bann í mars og apríl þá steig Larsen upp í mikilvægum sigrum gegn Southampton, West Ham og Ipswich. Spennandi verður að sjá hvort Larsen, sem er 25 ára, nái að fylgja eftir þessu góða fyrsta tímabili hjá Wolves en þar sem Cunha er farinn munu andstæðingarnir væntanlega leggja meiri áherslu á að loka á hann.

FRÉTTIR01.07.2025, 14:34

Kepa til Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur staðfest kaup á spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga frá Chelsea. Samningur þessa þrítuga markvarðar á Stamford Bridge átti að renna út 2026. Hann hefur verið síðustu tvö tímabil á láni, Real Madrid og svo hjá Bournemouth.

FRÉTTIR01.07.2025, 13:02

Jón Daði skrifaði undir við Selfoss út 2027 (Staðfest)

Jón Daði Böðvarsson hefur verið kynntur sem nýr leikmaður Selfoss í Lengjudeildinni en nú stendur yfir fréttamannafundur á veitingastaðnum MAR Seafood í Miðbænum á Selfossi. Selfoss er nýliði í Lengjudeildinni og er sem stendur í ellefta sæti, fallsæti, eftir tíu umferðir.

FRÉTTIR01.07.2025, 09:22

Cecilía keypt til Inter (Staðfest) - Næst dýrust í sögunni

Inter Milan hefur staðfest að félagið sé búið að ganga frá kaupum á íslenska landsliðsmarkverðinum Cecilíu Rán Rúnarsdóttur frá Bayern München. Cecilía var á láni hjá Inter frá Bayern á síðustu leiktíð og var besti markvörður ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili.

FRÉTTIR30.06.2025, 17:05

Óskar Borgþórs keyptur til Víkings (Staðfest)

Óskar Borgþórsson er orðinn leikmaður toppliðs Víkings í Bestu deildinni. Hann er keyptur frá norska B-deildar félaginu Sogndal þar sem hann hefur verið í tvö ár, en hann var keyptur þangað frá uppeldisfélaginu Fylki. Hann skrifar undir samning við Víkings sem gildir út tímabilið 2028.

FRÉTTIR30.06.2025, 14:28

Sveinn rekinn frá Víði (Staðfest)

Sveinn Þór Steingrímsson hefur verið rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Víðis. Snorri Már Jónsson, aðstoðarmaður Sveins, hefur líka verið látinn taka pokann sinn. Sveinn náði góðum árangri sem þjálfari Víði, tók við liðinu fyrir tímabilið 2023 eftir að hafa þjálfað Magna, vann Fótbolti.net bikairnn 2023 og fór með liðið upp úr 3. deildinni í fyrra. Byrjunin á þessu tímabili hefur ekki veri frábær, liðið er í 11. sæti 2. deildar með átta stig eftir fyrstu tíu umferðirnar.

FRÉTTIR29.06.2025, 11:50

Calvert-Lewin yfirgefur Everton (Staðfest)

Enski sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin yfirgefur Everton þegar samningur hans rennur út á morgun en þetta staðfesti hann á Instagram í dag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.