Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 11:50
Brynjar Ingi Erluson
Calvert-Lewin yfirgefur Everton (Staðfest)
Dominic Calvert-Lewin
Dominic Calvert-Lewin
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enski sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin yfirgefur Everton þegar samningur hans rennur út á morgun en þetta staðfesti hann á Instagram í dag.

Everton og Calvert-Lewin hafa rætt saman um framlengingu síðustu vikur en aðilarnir náðu ekki samkomulagi og er nú ljóst að hann mun spila undir öðrum merkjum á komandi leiktíð.

Calvert-Lewin er 28 ára gamall og spilað með Everton frá því hann var 19 ára.

Hann skoraði 71 mark í deild- og bikar með liðinu á níu árum sínum hjá félaginu, en nú er komið að kveðjustund.

„Til Everton og stuðningsmanna félagsins: Eftir níu merkileg ár hjá þessu félagi hef ég, ásamt fjölskyldu minni, tekið þá ótrúlega erfiðu ákvörðun að hefja nýjan kafla á ferli mínum.“

„Þetta er ekki eitthvað sem ég ákvað í skyndi. Everton hefur verið heimili mitt síðan ég var 19 ára gamall og er staðurinn sem sá að það var eitthvað í mig spunnið, skoraði á mig til að vaxa og mótaði mig bæði sem mann og fótboltamann.“

„Ákvörðun mín um að halda áfram minni vegferð snerist ekki bara um mig heldur var ákvörðun sem ég og fjölskylda mín eyddum löngum tíma í að íhuga.“

„Við teljum að þetta sé rétta augnablikið fyrir nýja áskorun og til að halda áfram að vaxa, en það skerðir ekki það einstaka samband sem ég mun alltaf eiga með Everton,“
sagði Englendingurinn.

Newcastle United, Nottingham Forest og West Ham eru öll sögð hafa áhuga á að fá hann í sumar.
Athugasemdir