Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24396 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.06.2025, 14:43

Kieran Tierney kynntur hjá Celtic (Staðfest)

Celtic kynnti í dag Kieran Tierney formlega sem nýjan leikmann félagsins. Búið var að segja frá skiptunum fyrr í vetur. Hann kemur til Celtic frá Arsenal en hann var fenginn til Arsenal frá Celtic fyrir sex árum síðan. Tierney er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem skrifar undir fimm ára samning við Celtic. Hann kemur á frjálsri sölu frá Arsenal.

FRÉTTIR10.06.2025, 14:30

Bettinelli til Man City (Staðfest)

Manchester City hefur tilkynnt um önnur kaup sín í glugganum en félagið hefur keypt Marcus Bettinelli frá Chelea. Bettinelli er 33 ára markmaður sem semur til eins árs. Hann kemur líklega inn sem þriðji markmaður eftir að Scott Carson yfirgaf City á dögunum. Kaupverðið er óuppgefið en það er ekki hátt.

FRÉTTIR10.06.2025, 12:54

Jobe Bellingham til Dortmund (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Jobe Bellingham, hefur fylgt í fótspor eldri bróður síns, Jude, með því að ganga í raðir Borussia Dortmund. Dortmund kaupir Jobe frá Sunderland en einungis nokkur ár eru frá því að Dortmund keypti Jude frá Birmingham og varð hann að stórstjörnu hjá þýska félaginu. Dortmund greiðir 27,8 milljónir punda fyrir Jobe og getur sú upphæð hækkað upp í 32 milljónir punda sem gerir hann að metsölu fyrir Sunderland.

FRÉTTIR09.06.2025, 18:40

Bischof kominn til Bayern (Staðfest) - Kynntur ásamt Tah

Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru búnir að staðfesta félagaskipti Tom Bischof til félagsins frá Hoffenheim. Hann er kynntur sem nýr leikmaður á sama tíma og miðvörðurinn Jonathan Tah sem kemur á frjálsri sölu frá Bayer Leverkusen.

FRÉTTIR08.06.2025, 15:00

Vieira framlengir við Genoa (Staðfest)

Franski þjálfarinn Patrick Vieira, sem hefur verið orðaður við Atalanta, Fiorentina og Juventus, verður áfram þjálfari Genoa, en hann framlengdi í dag samning sinn við félagið til 2027.

FRÉTTIR07.06.2025, 16:25

Armin Pecsi til Liverpool (Staðfest)

Liverpool gekk í dag frá kaupum á ungverska markverðinum Armin Pecsi, en hann kemur til félagsins frá Puskas Akademia.

FRÉTTIR07.06.2025, 11:11

Logi Tómasson til Samsunspor (Staðfest)

Logi Tómasson skrifaði í síðasta mánuði undir fjögurra ára samning við tyrkneska félagið Samsunspor og rétt í þessu voru félagaskiptin opinberuð af félögunum. Logi er keyptur til Samsunspor eftir tæp tvö ár hjá norska félaginu Strömsgodset. Hann lék vel hjá Godset og vann sér með því inn sæti í íslenska landsliðinu, en hann er einmitt núna með íslenska landsliðinu í Skotlandi. Hann var eftirsóttur í vetur, var t.d. sterklega orðaður við Brann í Noregi. Logi er 24 ára vinstri bakvörður sem samkvæmt <i>Transfermarkt</i> skoraði átta mörk og lagði upp fimm í 53 leikjum með Strömsgodset. <i>Transfermarkt</I> segir að Samsunspor greiði 700 þúsund evrur fyrir Loga en sú upphæð getur hækkað út frá árangurstengdum greiðslum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.