Fotbolti.net
09.06.25 - 15:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Keyptur til Real Betis eftir frábært tímabil (Staðfest)

Keyptur til Real Betis eftir frábært tímabil (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Real Betis hefur virkjað kaupákvæði í samningi brasilíska varnarmannsins Natan, en hann kemur til félagsins frá Napoli fyrir 8 milljónir evra.
Natan er 24 ára gamall miðvörður sem hefur spilað í Evrópu síðustu tvö árin.

Hann kom til Napoli frá Red Bull Bragantino árið 2023 fyrir 10 milljónir evra.

Brassinn náði sér ekki alveg á strik á Ítalíu og var því lánaður til Betis fyrir síðasta tímabil þar sem hann blómstraði.

Natan var í liði ársins í Sambandsdeild Evrópu er Betis komst í úrslit keppninnar í fyrsta sinn og spilaði þá frábærlega í La Liga þar sem Betis lenti í 6. sæti.

Mikil ánægja var með frammistöðu hans hjá Betis og hefur félagið nú virkjað 8 milljóna evra kaupákvæði í samningi hans.

Miðvörðurinn skrifaði undir fimm ára samning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.