Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Como kaupir leikmann frá Barca (Staðfest)
Í viðræðum við Dinamo Zagreb
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalska fótboltafélagið Como ætlar sér stóra hluti á næstu árum og er þegar byrjað að styrkja leikmannahópinn fyrir næstu leiktíð.

Eftir að hafa tekist að halda Cesc Fábregas þjálfara innan sinna raða þrátt fyrir áhuga frá ýmsum stórveldum er Como búið að ganga frá kaupum á bakverði frá Barcelona.

Sá heitir Álex Valle og kemur til Como frá La Masia akademíu Barcelona. Valle kom upprunalega til Como á lánssamningi í janúar og stóð sig mjög vel í Serie A.

Valle vann sér inn sæti í byrjunarliði Como og ákvað ítalska félagið að ganga frá kaupum á honum fyrir um 6 milljónir evra.

Valle er 21 árs gamall og átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona. Hann gerir fjögurra ára samning við Como, sem gildir út leiktíðina 2028-29.

Valle fékk aldrei að spreyta sig fyrir aðallið Barcelona en hann var mikilvægur hlekkur í varaliðinu og lék einnig á láni hjá Levante og Celtic áður en hann gekk til liðs við Como.

Hann á 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Spánverja.

Næsti leikmaður sem kemur til Como er króatískur og heitir Martin Baturina. Hann er 22 ára gamall og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Baturina er með þrjú ár eftir af samningi sínum við Dinamo Zagreb en vill ólmur reyna fyrir sér í sterkari deild.

Hann kom að 18 mörkum í 45 leikjum með Dinamo á síðustu leiktíð og er nú þegar með 12 A-landsleiki að baki fyrir sterkt lið Króatíu.

Baturina var lykilmaður í U21 liði Króatíu og er einnig lykilmaður hjá Dinamo, þar sem hann hefur spilað 165 keppnisleiki fyrir félagið.

Como er í viðræðum við Dinamo og virðist vera að nálgast samkomulag um kaupverð.
Athugasemdir
banner