Brynjar Kristmundsson hefur tekið ákvörðun um að hætta sem þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir þetta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólsurum í dag.
Brynjar er á þriðja tímabili sínu sem aðalþjálfari Víkings, en áður var hann aðstoðarþjálfari liðsins til þriggja ára.
Þetta verður hans síðasta tímabil sem þjálfari liðsins, en hann er að flytja af svæðinu og óskaði eftir því að fá að hætta eftir leiktíðina.
Undir hans stjórn hefur liðið ná góðum árangri. Það hafnaði í 5. sæti 2. deildar árið 2023 og var síðan hársbreidd frá því að komast upp í Lengjudeildina á síðasta ári en liðið hafnaði í 4. sæti með 42 stig, aðeins stigi frá því að komast upp.
„Við þökkum Brynjari fyrir góð störf fram til þessa og væntum mikils af honum í sumar. Allir sem að félaginu koma eru staðráðnir í að klára sumarið og samstarfið með góðum hætti,“ segir í tilkynningu Víkings Ó.
Víkingur hefur ekki byrjað þetta tímabil nógu vel. Liðið er aðeins með einn sigur úr fyrstu sex leikjunum og þar af þrjú jafntefli, en það situr í 8. sæti með 6 stig, níu stigum frá toppnum.
2. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Þróttur V. | 6 | 5 | 0 | 1 | 11 - 4 | +7 | 15 |
2. Ægir | 6 | 4 | 1 | 1 | 12 - 7 | +5 | 13 |
3. Grótta | 6 | 3 | 2 | 1 | 9 - 5 | +4 | 11 |
4. Haukar | 6 | 3 | 2 | 1 | 10 - 7 | +3 | 11 |
5. Dalvík/Reynir | 6 | 3 | 1 | 2 | 8 - 4 | +4 | 10 |
6. Kormákur/Hvöt | 6 | 3 | 0 | 3 | 6 - 12 | -6 | 9 |
7. KFA | 6 | 2 | 2 | 2 | 13 - 9 | +4 | 8 |
8. Víkingur Ó. | 6 | 1 | 3 | 2 | 10 - 9 | +1 | 6 |
9. Kári | 6 | 2 | 0 | 4 | 6 - 9 | -3 | 6 |
10. Víðir | 6 | 1 | 2 | 3 | 7 - 9 | -2 | 5 |
11. KFG | 6 | 1 | 1 | 4 | 8 - 13 | -5 | 4 |
12. Höttur/Huginn | 6 | 0 | 2 | 4 | 4 - 16 | -12 | 2 |
Athugasemdir