Fotbolti.net
09.06.25 - 11:16
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea kaupir 19 ára gamlan varnarmann frá Strasbourg (Staðfest)

Chelsea kaupir 19 ára gamlan varnarmann frá Strasbourg (Staðfest)
Canon

Mynd: Franska fótboltasambandið

Chelsea hefur fest kaup á franska varnarmanninum Mamadou Sarr frá franska félaginu Strasbourg.
Sarr er 19 ára gamall og spilaði stórt hlutverk í liði Strasbourg sem komst í Sambandsdeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.

Hann lék 28 leiki í öllum keppnum og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína.

Chelsea hefur gengið frá kaupum á honum en talið er að kaupverðið nemi í kringum 12 milljónir punda.

Viðræður gengu hratt fyrir sig enda eru bæði félögin í eigu Todd Boehly og félaga í BlueCo.

Sarr á enn eftir að spila fyrir A-landslið Frakka, en hann á 32 leiki og 2 mörk að baki fyrir yngri landsliðin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.