Fotbolti.net
07.06.25 - 11:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Logi Tómasson til Samsunspor (Staðfest)

Kvöldverður og undirskrift í Istanbúl: Logi Tómasson með umboðsmanni sínum, Ólafi Garðarssyni, forseta Samsunspor og Davor Suker.

Kvöldverður og undirskrift í Istanbúl: Logi Tómasson með umboðsmanni sínum, Ólafi Garðarssyni, forseta Samsunspor og Davor Suker.

Canon

Mynd: Aðsend

Logi Tómasson skrifaði í síðasta mánuði undir fjögurra ára samning við tyrkneska félagið Samsunspor og rétt í þessu voru félagaskiptin opinberuð af félögunum.

Logi er keyptur til Samsunspor eftir tæp tvö ár hjá norska félaginu Strömsgodset. Hann lék vel hjá Godset og vann sér með því inn sæti í íslenska landsliðinu, en hann er einmitt núna með íslenska landsliðinu í Skotlandi. Hann var eftirsóttur í vetur, var t.d. sterklega orðaður við Brann í Noregi.

Logi er 24 ára vinstri bakvörður sem samkvæmt Transfermarkt skoraði átta mörk og lagði upp fimm í 53 leikjum með Strömsgodset. Transfermarkt segir að Samsunspor greiði 700 þúsund evrur fyrir Loga en sú upphæð getur hækkað út frá árangurstengdum greiðslum.
Logi skrifar undir fjögurra ára samning við Samsunspor með möguleika á eins árs framlengingu. Hér við fréttina má sjá mynd frá kvöldverði í Istanbul í síðasta mánuði þar sem Logi skrifaði undir samning sinn við tyrkneska félagið. Á myndinni eru Logi sjálfur, umboðsmaður hans Ólafur Garðarsson, Yuksel Yildirim sem er forseti Samsunspor og króatíska goðsögnin Davor Suker.

Forsetinn, sem er einn efnaðasti maður Tyrklands, og Suker eru góðir félagar og bauð Yilidrim Króatanum í kvöldverðinn. Suker vann gullskóinn á HM í Frakkandi 1998, skoraði þá sex mörk í sjö leikjum. Hann varð svo síðar forseti króatíska fótboltasambandsins.

Tyrkneska félagið vildi tryggja sér Loga vel áður en glugginn opnaði formlega til þess að hann væri alveg pottþétt kominn þegar undirbúningstímabilið fyrir næsta tímabil hefst í byrjun júlí. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var tyrkneska félagið tilbúið að teygja sig langt svo Logi veldi það frekar en önnur félög, hann er því að fá nokkuð góðan samning hjá tyrkneska félaginu.

Samsunspor átti mjög gott tímabil og tryggði sér um liðna helgi þriðja sætið í deildinni. Liðið mun því koma inn í umspilsumferðina, síðustu umferðina í forkeppninni, í Evrópudeildinni í ágúst.

Landsliðsmaðurinn orðinn leikmaður Samsunspor.

Landsliðsmaðurinn orðinn leikmaður Samsunspor.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi á leið til Tyrklands - „Ógeðslega spennandi skref“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.