Fotbolti.net
09.06.25 - 17:19
Ívan Guðjón Baldursson

Rayan Aït-Nouri til Man City (Staðfest)

Rayan Aït-Nouri til Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enska stórveldið Manchester City er búið að staðfesta kaup á fransk-alsírska bakverðinum Rayan Aït-Nouri.
Man City greiðir rúmlega 35 milljónir punda til að kaupa Aït-Nouri frá Wolves. Hann gerir fimm ára samning við félagið, sem gildir til sumarsins 2030.

Aït-Nouri hefur verið einn af betri vinstri bakvörðum ensku deildarinnar síðustu ár en hann er aðeins 24 ára gamall og á nú þegar 135 leiki að baki í úrvalsdeildinni.

Aït-Nouri hefur verið hjá Wolves í fimm ár en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og ætlaði ekki að skrifa undir.

Hann er annar lykilmaðurinn sem Úlfarnir selja til Manchester á upphafi sumars eftir að Matheus Cunha fór til Man Utd.

Aït-Nouri mun leika með Man City á HM félagsliða í sumar.

Rayan Aït-Nouri til Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.