Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 15:27
Brynjar Ingi Erluson
Cristian Chivu ráðinn þjálfari Inter (Staðfest)
Mynd: Inter
Ítalska félagið Inter hefur fundið arftaka Simone Inzaghi en það er rúmenski þjálfarinn Cristian Chivu sem mun leiða liðið áfram næstu tvö árin.

Inzaghi hætti með Inter eftir 5-0 tapið gegn Paris Saint-Germain í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á dögunum og samdi hann við Al Hilal í Sádi-Arabíu.

Inter hefur verið í dauðaleit að nýjum þjálfara síðan. Cesc Fabregas var talinn líklegastur til að taka við, en hann ákvað í staðinn að sýna Como hollustu sína og vera áfram.

Áfram hélt leitin og tók það Inter aðeins nokkra daga að finna loks mann til að taka við keflinu, en það hefur ráðið Cristian Chivu til starfa.

Chivu þekkir vel til hjá Inter eftir að hafa spilað með liðinu frá 2007 til 2014. Hann vann þrennuna með liðinu undir stjórn Jose Mourinho árið 2010 og spilaði alls 168 leiki á tíma sínum þar.

Rúmeninn lagði skóna á hilluna árið 2014 og sneri aftur til Inter fjórum árum síðar til að þjálfa unglingaliðin. Þar starfaði hann í sex ár áður en hann tók við Parma í febrúar á þessu ári.

Verkefni hans var að bjarga liðinu frá falli sem tókst, en hann yfirgaf félagið eftir tímabilið og er nú kominn í eitt stærsta giggið á Ítalíu.

Ítalskir miðlar hafa skrifað um að hann gæti fengið Walter Samuel, fyrrum samherja sinn hjá Inter, til að aðstoða sig, en það mun væntanlega ráðast á næstu dögum.


Athugasemdir
banner