Manchester City hefur tilkynnt um önnur kaup sín í glugganum en félagið hefur keypt Marcus Bettinelli frá Chelea.
Bettinelli er 33 ára markmaður sem semur til eins árs. Hann kemur líklega inn sem þriðji markmaður eftir að Scott Carson yfirgaf City á dögunum. Kaupverðið er óuppgefið en það er ekki hátt.
Bettinelli er 33 ára markmaður sem semur til eins árs. Hann kemur líklega inn sem þriðji markmaður eftir að Scott Carson yfirgaf City á dögunum. Kaupverðið er óuppgefið en það er ekki hátt.
Bettinelli er Englendingur sem uppalinn er hjá Fulham og var hjá félaginu til 2021 þegar hann hélt til Chelsea. Hann lék einn keppnisleik fyrir Chelsea á fjórum árum, leik í enska bikarnum 2021/22.
Hann lék árið 2015 einn leik fyrir U21 landslið Englands. Hann er með tengingar við Ítalíu í gegnum föður sinn. Faðir hans Vic Bettinelli er markmannsþjálfari í akademíu Fulham.
Athugasemdir