Fotbolti.net
09.06.25 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

Bischof kominn til Bayern (Staðfest) - Kynntur ásamt Tah

Bischof lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Þýskaland í gær.

Bischof lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Þýskaland í gær.

Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru búnir að staðfesta félagaskipti Tom Bischof til félagsins frá Hoffenheim. Hann er kynntur sem nýr leikmaður á sama tíma og miðvörðurinn Jonathan Tah sem kemur á frjálsri sölu frá Bayer Leverkusen.
Bischof er gríðarlega efnilegur og fjölhæfur leikmaður sem leikur sem miðjumaður að upplagi. Hann getur einnig spilað á báðum köntum og sem sóknartengiliður.

Bischof kom að 9 mörkum í 41 leik með Hoffenheim á nýliðnu tímabili en núna er hann búinn að gera fjögurra ára samning við Bayern.

Bischof, sem verður tvítugur í lok júní, verður því skráður til leiks með Bayern á HM félagsliða í sumar. Rétt eins og Jonathan Tah.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.