Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kieran Tierney kynntur hjá Celtic (Staðfest)
Mynd: EPA
Celtic kynnti í dag Kieran Tierney formlega sem nýjan leikmann félagsins. Búið var að segja frá skiptunum fyrr í vetur.

Hann kemur til Celtic frá Arsenal en hann var fenginn til Arsenal frá Celtic fyrir sex árum síðan.

Tierney er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem skrifar undir fimm ára samning við Celtic. Hann kemur á frjálsri sölu frá Arsenal.

Hann er uppalinn hjá Celtic og hittir fyrir Brendan Rodgers en þeir unnu saman í fyrri tíð Tierney hjá Celtic.

„Ég ræddi við stjórann, hafði auðvitað unnið með honum áður, og hef alltaf haldið sambandinu. Hann er einn sá besti svo ég er heppinn og þakklátur að hann hefur gefið mér tækifærið á að koma aftur."

„Metnaður minn er að Celtic nái eins mikilli velgengni og hægt er, haldi sér á topnum, haldi áfram að vinna titla og að ég geri vel fyrir Celtic,"
segir Tierney.

Tierney lék 144 leiki með Arsenal og vann enska bikarinn árið 2020. Meiðsli og samkeppni komu í veg fyrir að leikirnir yrðu fleiri.
Athugasemdir
banner
banner