Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham rak líka þjálfara kvennaliðsins (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Robert Vilahamn, þjálfari kvennaliðs Tottenham, var rekinn í dag eftir slakan árangur á tímabilinu.

Þessar fréttir koma aðeins nokkrum dögum eftir að Ange Postecoglou, stjóri karlaliðsins, var látinn taka poka sinn þrátt fyrir að hafa unnið fyrsta titil félagsins í 17 ár.

Vilahamn tók við kvennaliðinu árið 2023 eftir að hafa þjálfað sænska liðið BK Häcken í tæp tvö ár.

Hann stýrði Tottenham í 6. sæti á fyrsta tímabili sínu og kom liðinu í bikarúrslit ári síðar.

Á nýafstöðnu tímabili hafnaði liðið í næst neðsta sæti deildarinnar, sem var óviðunandi árangur að mati félagsins og var því Vilahamn látinn fara.

„Það hafa verið nokkur sérstök augnablik á tíma Roberts, þar sem liðið komst meðal annars í bikarúrslit í fyrsta sinn. Hins vegar hafa úrslit og frammistaða liðsins á nýafstöðnu tímabili ekki verið í samræmi við það sem við vorum að vonast eftir og því er rétti tíminn til að gera breytingar. Við viljum þakka Robert fyrir framlag hans og fagmennsku sem hann hefur sýnt síðustu tvö tímabil og óskum honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni,“ segir í tilkynningu Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner