Fotbolti.net
09.06.25 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson

Carson yfirgefur Man City (Staðfest) - Spilaði tvo leiki á sex árum

Carson yfirgefur Man City (Staðfest) - Spilaði tvo leiki á sex árum
Canon

Mynd: EPA

Reynsluboltinn og stuðpinninn Scott Carson er á förum frá Manchester City þegar samningur hans rennur út um mánaðamótin en félagið greinir frá þessu.
Carson er 39 ára gamall og verið á mála hjá Man City frá 2019.

Hann kom fyrst á láni frá Derby County og var síðan fenginn alfarið yfir tveimur árum síðar.

Á sex árum hans hjá Man City spilaði hann aðeins tvo leiki, í markalausu jafntefli gegn Sporting í Meistaradeildinni og í 4-3 sigri á Newcastle United í deildinni.

Carson er vinsæl fígúra í búningsklefa Man City og var það stór ástæða fyrir að hann hélt sæti sínu í hópnum. Hann kvartaði ekki yfir því að fá ekki að spila heldur ákvað frekar að njóta ferðalagsins.

Samningur hans rennur út í sumar og er ljóst að hann er á förum frá félaginu, en Man City er að skoða það að fá Marcus Bettinelli, 33 ára gamlan markvörð Chelsea, í stað Carson.

Man City vil ganga frá markvarðarmálunum fyrir HM félagsliða sem hefst á næstu dögum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.