Fotbolti.net
09.06.25 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Correa og Cabral fara með á HM félagsliða (Staðfest)

Correa og Cabral fara með á HM félagsliða (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Argentínumaðurinn Joaquin Correa rann út á samningi hjá Inter í sumar en er strax búinn að finna sér nýtt félag og mun taka þátt á HM félagsliða í sumar.
Correa er búinn að skrifa undir samning við brasilíska félagið Botafogo, sem er í eigu John Textor sem er einnig meirihlutaeigandi franska stórveldisins Lyon og minnihlutaeigandi í Crystal Palace.

Correa, sem verður 31 árs í ágúst, hefur leikið fyrir Lazio og Inter í ítalska boltanum á undanförnum árum, en þar áður var hann leikmaður Sevilla á Spáni. Hann á 4 mörk í 20 landsleikjum með Argentínu.

Correa gerir tveggja og hálfs árs samning við Botafogo sem er í afar erfiðum riðli með Paris Saint-Germain, Atlético Madrid og Seattle Sounders á HM.

Brasilíski framherjinn Arthur Cabral er einnig búinn að gera samning við Botafogo.

Botafogo kaupir hann frá Benfica og gerir Cabral þriggja og hálfs árs samning.

Cabral er 27 ára gamall og kom að 9 mörkum í 34 leikjum með Benfica á nýliðnu tímabili. Þar áður lék hann fyrir Fiorentina á Ítalíu og Basel í Sviss.

Correa og Cabral fara með á HM félagsliða (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.