Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24382 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.04.2026, 23:30

Grindavík kaupir Gunnleif Orra (Staðfest)

Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) er genginn til liðs við Grindavík frá Breiðabliki, hann skrifar undir tveggja ára samning. Gunnleifur er uppalinn í Breiðabliki. Hann kom við sögu í fjórum leikjum í Lengjubikarnum í vetur og var nokkrum sinnum í hópnum síðasta sumar.

FRÉTTIR24.04.2026, 17:32

Lyngby kaupir Ísak Snæ (Staðfest) - „Mjög góður staður til að vera á"

Lyngby hefur gengið frá kaupum á Ísaki Snæ Þorvaldssyni frá Rosenborg. Ísak Snær er á láni hjá danska félaginu frá því norska og var kaupákvæði í lánssamningnum. Ísak skrifar undir samning sem gildir til 2029. Rosenborg keypti Ísak eftir að hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2022 en hann náði aldrei almennilega að stimpla sig inn hjá norska stórliðinu. Höfuðmeiðsli settu strik í tímabilið 2023, 2024 var hann á láni hjá Breiðabliki og síðasta sumar fór hann til Lyngby. Ísak er lykilmaður í liði Lyngby sem er nálægt því að tryggja sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað sjö mörk í 25 leikjum með danska liðinu frá því að hann kom í sumarglugganum í fyrra.

FRÉTTIR24.04.2026, 14:05

Eyjamenn fá Sturlu frá Bodö/Glimt (Staðfest)

Sturla Sagatun Kristjánsson hefur fengið félagaskipti í ÍBV en hann kemur frá Bodö/Glimt. Sturla er fæddur árið 2006 og var í vetur á reynslu hjá bæði Vestra og Val. Hann hefur verið í U15, U17 og U19 hópum og á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin.

FRÉTTIR24.04.2026, 10:57

Elvar Máni aftur í KA eftir þrjú ár í Garðabæ (Staðfest)

Elvar Máni Guðmunsson (2006) er mættur aftur í KA eftir að hafa verið síðustu þrjú árin í Garðabæ. Hann er uppalinn hjá KA og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 2021 þegar hann kom inn á í leik í efstu deild. Elvar Máni á að baki sjö leiki fyrir yngri landsliðin. Hann lék með KFG á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk fyrir Garðabæjarliðið í 2. deild.

FRÉTTIR24.04.2026, 08:30

Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)

Valdimar Jóhannsson er búinn að framlengja samning sinn við Njarðvík út árið 2028. Hann verður því hjá félaginu næstu þrjú keppnistímabil.

FRÉTTIR23.04.2026, 17:20

Ísak Atla í ÍR (Staðfest)

Ísak Atli Atlason mun leika fyrir ÍR í sumar og fetar þar með í fótspor stóra bróðurs síns.

FRÉTTIR23.04.2026, 08:00

Sessegnon verður áfram hjá Fulham (Staðfest)

Englendingurinn Ryan Sessegnon verður áfram hjá Fulham á næsta tímabili, en félagið virkjaði ákvæði í samningi leikmannsins um að framlengja hann um eitt ár.

FRÉTTIR22.04.2026, 16:41

Rosenior rekinn (Staðfest)

Chelsea er búið að reka Liam Rosenior úr starfi sem stjóri liðsins. Hann var einungis rúma þrjá mánuði í starfi. Í yfirlýsingu Chelsea er Rosenior og hans teymi þakkað fyrir sín störf hjá félaginu. Sagt er að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld en eftir úrslit síðustu leikja og frammistöðu liðsins þá hafi þurft að gera breytingu þar sem enn sé mikið undir í lokaleikjunum. Chelsea hefur tapað fimm deildarleikjum í röð og þarf gengið að snarbatna ef liðið ætlar að ná Evrópusæti. Í leikjunum fimm náði Chelsea ekki að skora. Síðasti nagli í kistu Rosenior var 3-0 tapið gegn Brighton í gær.

FRÉTTIR22.04.2026, 11:36

Samúel Kári keyptur í Val (Staðfest) - Upphæðin trúnaðarmál

Valur hefur fest kaup á Samúel Kára Friðjónssyni en hann kemur á Hlíðarenda efitr rúmt ár hjá Stjörnunni. Í tilkynningu Vals er sagt frá því að Samúel semji út tímabilið 2028 en kaupverðið er óuppgefið. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik með Val gegn FH klukkan 19:15 á morgun, sá leikur verður spilaður á N1 vellinum, heimavelli Vals.

FRÉTTIR21.04.2026, 12:26

Andi Hoti aftur í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding hefur fengið Andi Hoti (2003) í sínar raðir á láni frá Val út komandi tímabil í Lengjudeildinni. Þetta er í annað sinn á ferlinum sem Andi fer á láni í Mosfellsbæinn því tímabilið 2022 var hann á láni frá uppeldisfélaginu Leikni. Andi spilaði þá 25 leiki með Aftureldingu í deild og bikar og skoraði þrjú mörk. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann líka nálægt því að fara í Mosó á síðasta tímabili. Valur keypti Andi frá Leikni fyrir síðasta tímabili og lék hann tíu leiki í deild og tvo í bikar tímabilið 2025. Hann á að baki níu leiki og tvö mörk fyrir yngri landsliðin. <b>Úr tilkynningu Aftureldingar</b> Afturelding vill þakka Val fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við lánssamninginn. <i>„Mér líst mjög vel á að vera kominn aftur í Aftureldingu. Mér leið mjög vel þegar ég var hérna síðast og er fullur tilhlökkunar fyrir tímabilinu. Vonandi get ég hjálpað liðinu að ná sínum markmiðum og ég hlakka til að sjá alla á vellinum í sumar!”</I> sagði Andi eftir undirskrift. Afturelding býður Andi hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn!

FRÉTTIR21.04.2026, 06:00

Afturelding fær leikmann frá Gróttu (Staðfest)

Maria Baska er gengin til liðs við Afturelding frá Gróttu. Hún spilaði átta leiki í Lengjudeildinni og bikarnum með Gróttu og skoraði tvö mörk. Hún tekur nú slaginn með Aftureldingu í 2. deild.

FRÉTTIR21.04.2026, 06:00

Atli Þór til Dalvíkur (Staðfest)

Atli Þór Sindrason er genginn til liðs við Dalvík/Reyni á láni frá grönnunum í Þór. Atli er fæddur árið 2007. Hann er uppalinn á Blönduósi en kom í Þór í 4. flokki. Hann kom við sögu í 14 leikjum og skoraði eitt mark í fyrra þegar Þór vann Lengjudeildina. Hann var valinn efnilegasti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins.

FRÉTTIR20.04.2026, 18:03

ÍA - KA verður í Akraneshöllinni (Staðfest)

ÍA hefur staðfest að leikur liðsins gegn KA í 3. umferð Bestu deildarinnar verður spilaður inn í Akraneshöllinni á miðvikudaginn næstkomandi. Leikurinn, sem hefst 18:00, átti upphaflega að fara fram á ELKEM vellinum en hann er ekki klár í slaginn.

FRÉTTIR20.04.2026, 16:38

Marco Rose tekur við Bournemouth (Staðfest)

Marco Rose mun taka við Bournemouth af Andoni Iraola sem lætur af störfum sem stjóri liðsins í sumar. Rose hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR20.04.2026, 14:00

Hagi tekur við Rúmeníu eftir andlát Lusescu (Staðfest)

Rúmenska goðsögnin Gheorghe Hagi er tekinn við sem nýr landsliðsþjálfari Rúmeníu. Hann tekur við af Mircea Lucescu sem lést á dögunum. Lusescu stýrði Rúmenum í 1-0 tapinu gegn Tyrkjum í undanúrslitum HM-umspilsins í mars og varð þar með elsti landsliðsþjálfari sögunnar. Rúmenar áttu síðan æfingaleik við Slóvakíu, en nokkrum tímum fyrir flug fékk Lucescu fyrir hjartað og gat því ekki ferðast í leikinn. Nokkrum dögum síðar lést Lusescu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.