Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Árni Salvar í Kára (Staðfest)
Mynd: Kári
Árni Salvar Heimisson er genginn í raðir Kára frá ÍA.

Árni, sem er 22 ára gamall, hefur spilað 28 leiki í Bestu deildinni með ÍA, en áður lék hann með Grindavík.

Hann spilaði þá 12 leiki með Kára í 2. deild árið 2021 og mun halda áfram að bæta við leiki sína hjá félaginu, en hann hefur fengið félagaskipti yfir í félagið.

„Það er ljóst að hér er á ferðinni mikill liðsstyrkur fyrir Káramenn, en Árni Salvar er mikill dugnaðarforkur og leggur sig alltaf 100% fram. Árni er flott fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og mun styrkja leikmannahóp Kára mikið í sumar,“ segir í tilkynningu Kára.

Kári hafnaði í 9. sæti 2. deildar á síðustu leiktíð.


Slapp
banner
banner
banner