Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
ÍA - KA verður í Akraneshöllinni (Staðfest)
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
ÍA hefur staðfest að leikur liðsins gegn KA í 3. umferð Bestu deildarinnar verður spilaður inn í Akraneshöllinni á miðvikudaginn næstkomandi.

Leikurinn, sem hefst 18:00, átti upphaflega að fara fram á ELKEM vellinum en hann er ekki klár í slaginn.

„Elkemvöllurinn er ekki leikfær að svo stöddu. Vöxtur á grasinu er ekki nægjanlegur, yfirborðið er óslétt og völlurinn mjög blautur. Ljóst er að leikur á vellinum á þessum tímapunkti gæti skaðað hann til lengri tíma," segir í tilkynningu ÍA.

„Færri áhorfendur munu komast að en vilja, þar sem höllin rúmar einfaldlega ekki allan þann fjölda sem mun vilja mæta.

ÍA er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en KA er á botninum án stiga.


Slapp
banner
banner