Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Krista Sól heim í Tindastól (Staðfest) - Þrjár efnilegar skrifa undir
Kvenaboltinn
Krista Sól er komin heim
Krista Sól er komin heim
Mynd: Tindastóll
Krista Sól Nielsen hefur samið um að leika með Tindastól í Lengjudeildinni í sumar og þá hafa þrjár uppaldar skrifað undir samning við félagið.

Krista er fædd árið 2022 og lék átta tímabil með meistaraflokki Tindastól áður en hún hélt til Grindavíkur/Njarðvíkur fyrir síðustu leiktíð.

Hún á að baki 68 meistaraflokksleiki og 6 mörk með liðunum, en hún er komin aftur heim í Tindastól og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Þrjár efnilegar stelpur hafa þá skrifað undir samning við félagið, en það eru þær Silja Sigurósk Reimarsdóttir (2008), Katelyn Eva John (2008) og Harpa Sif Hreiðarsdóttir (2009).

Í tilkynningu kemur fram að þær hafi skrifað undir til næstu ára.

Tindastóll hafnaði í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og féll því niður í Lengjudeildina.


Slapp
banner
banner
banner