Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Maggý skrifar undir hjá Haukum (Staðfest) - „Við erum mög heppin“
Kvenaboltinn
Mynd: Haukar
Miðvörðurinn Maggý Lárentsínusdóttir hefur samið við Hauka um að leika með liðinu í Lengjudeildinni á komandi leiktíð, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Þetta er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Hauka en Maggý spilaði lengi vel með FH og var einn af bestu miðvörðum Lengjudeildarinnar árið 2022 ásamt því að vera valin íþróttakona FH.

Vorið 2023 var greint frá því að Maggý væri ólétt og spilaði því ekki fótbolta það árið, en hún tók aftur fram skóna á síðasta ári og spilaði með einn leik með Smára í 2. deild. Hún á yfir 200 meistaraflokksleiki og kemur til með að styrkja liðið verulega.

Hún er nú gengin í raðir Hauka sem ætla sér stóra hluti á komandi tímabili.

Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari Hauka, bindur miklar vonir við komu hennar.

„Hún hefur komið sterk inn til okkar, en hún er fyrst og fremst mikill liðsmaður. Hún kemur með mikla reynslu og frábært hugarfar sem við erum alltaf að leitast eftir að bæta við í liðið. Við erum mjög heppin að fá Maggý til okkar,“ sagði Hörður.


Slapp
banner
banner
banner