Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 11:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samúel Kári keyptur í Val (Staðfest) - Upphæðin trúnaðarmál
,,Þarf auðvitað að vera góð blanda með reyndari mönnum"
Mynd: Valur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur fest kaup á Samúel Kára Friðjónssyni en hann kemur á Hlíðarenda efitr rúmt ár hjá Stjörnunni.

Í tilkynningu Vals er sagt frá því að Samúel semji út tímabilið 2028 en kaupverðið er óuppgefið. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik með Val gegn FH klukkan 19:15 á morgun, sá leikur verður spilaður á N1 vellinum, heimavelli Vals.

Tilkynning Vals
Knattspyrnudeild Vals hefur fest kaup á miðjumanninum Samúel Kára Friðjónssyni frá Stjörnunni. Hann gerir samning við Val út tímabilið 2028. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Samúel Kári, sem er þrítugur, hefur verið einn af allra bestu miðjumönnum Bestu deildarinnar frá því hann sneri heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið 2025. Auk þess á hann að baki farsælan feril sem atvinnumaður erlendis og hefur leikið með íslenska landsliðinu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals:

„Samúel er frábær leikmaður, heilbrigður karakter á flottum aldri. Hann hefur þau persónueinkenni sem ég vil sjá á miðjunni hjá okkur og passar mjög vel inn í það sem við erum að byggja upp. Með þessari viðbót er liðið farið að líta virkilega vel út hjá okkur og ég hlakka mikið til.“

Gareth Owen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Val:

„Líkt og fram hefur komið erum við í Val á ákveðinni vegferð þar sem við erum að horfa meira til ungra leikmanna. Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta þarf auðvitað að vera góð blanda með reyndari mönnum. Þegar leikmaður með þá eiginleika og gæði sem Samúel býr yfir býðst þá er allt kapp lagt á að landa honum. Hann tikkar í mörg box hjá okkur og er hugsaður sem lykilmaður inni á miðjunni í því verkefni sem er framundan. Samúel er þekkt stærð í deildinni og mikill stríðsmaður sem mun styrkja liðið strax í baráttunni.“

Við bjóðum Samúel Kára velkominn í Val

Tilkynning Stjörnunnar
Stjarnan og Valur hafa náð samkomulagi um sölu á Samúel Kára Friðjónssyni. Sammi hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu og lagt sitt af mörkum bæði innan vallar sem utan. Nú tekur við nýr kafli og við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi. Takk fyrir tímann í Garðabænum.
Slapp
banner
banner