Ísak Atli Atlason mun leika fyrir ÍR í sumar og fetar þar með í fótspor stóra bróðurs síns.
Ísak Atli leikur hjá ÍR á lánssamningi frá FH sem gildir út tímabilið.
Stóri bróðir hans, Patrik Snær Atlason, gerði flotta hluti með ÍR á sínum tíma en hann er betur þekktur sem Prettyboitjokko í íslensku tónlistarsenunni.
Ísak er bakvörður að upplagi en getur einnig spilað á kantinum og er þekktur fyrir mikinn hraða. Hann er fæddur 2007 og lék á sínum tíma tvo leiki fyrir U16 landslið Íslands.
ÍR leikur í Lengjudeildinni eftir að hafa rétt misst af umspilssæti í fyrra.



