Afturelding hefur fengið Andi Hoti (2003) í sínar raðir á láni frá Val út komandi tímabil í Lengjudeildinni. Þetta er í annað sinn á ferlinum sem Andi fer á láni í Mosfellsbæinn því tímabilið 2022 var hann á láni frá uppeldisfélaginu Leikni.
Andi spilaði þá 25 leiki með Aftureldingu í deild og bikar og skoraði þrjú mörk. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann líka nálægt því að fara í Mosó á síðasta tímabili.
Valur keypti Andi frá Leikni fyrir síðasta tímabili og lék hann tíu leiki í deild og tvo í bikar tímabilið 2025. Hann á að baki níu leiki og tvö mörk fyrir yngri landsliðin.
Úr tilkynningu Aftureldingar
Afturelding vill þakka Val fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við lánssamninginn.
„Mér líst mjög vel á að vera kominn aftur í Aftureldingu. Mér leið mjög vel þegar ég var hérna síðast og er fullur tilhlökkunar fyrir tímabilinu. Vonandi get ég hjálpað liðinu að ná sínum markmiðum og ég hlakka til að sjá alla á vellinum í sumar!” sagði Andi eftir undirskrift.
Afturelding býður Andi hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn!

Komnir
Birkir Már Sævarsson frá Svíþjóð
Joacim Holtan frá Noregi
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Andi Hoti frá Val á láni
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK
Farnir
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram
Samningslausir
Benjamin Stokke
Sigurpáll Melberg Pálsson
Luc Kassi