Almar Örn Róbertsson, Einar Ari Ármannsson og Gabriel Lukas Freitas Meira hafa samið um að leika með Dalvík/Reyni til næstu tveggja ára.
Almar er fæddur árið 2006 og kemur frá KA, en hann væng- og sóknarmaður með sterka Dalvíkurtengingu.
Hann spilaði sinn fyrsta keppnisleik með liðinu í síðasta mánuði í 3-1 tapinu gegn Magna í Mjólkurbikarnum og spilaði þá í Lengjubikarnum.
Einar Ari er markvörður sem er fæddur árið 2003. Hann er uppalinn í KA en hefur spilað með Magna síðustu ár.
Gabriel Meira er fæddur 2006 og er sömuleiðis uppalinn í KA. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur komið sterkur inn hjá Dalvík/Reyni í vetur.
Dalvík/Reynir hafnaði í 5. sæti 2. deildar á síðasta ári með 34 stig.


