Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Inga Laufey og Kyla Burns í KR (Staðfest)
Kvenaboltinn
Inga Laufey er gengin aftur í raðir KR
Inga Laufey er gengin aftur í raðir KR
Mynd: KR
Kyla Burns kemur í markið hjá KR
Kyla Burns kemur í markið hjá KR
Mynd: KR
KR hefur sótt tvo öfluga leikmenn fyrir tímabilið en þær Inga Laufey Ágústsdóttir og Kyla Elizabeth Burns eru komnar til félagsins.

Inga Laufey er fædd árið 2001 og þekkir vel til hjá KR eftir að hafa spilað með liðinu í efstu deild og næst efstu frá 2020 til 2022. Einnig hefur hún spilað með Aftureldingu og í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Hún skrifaði undir tveggja ára samning við KR, en einnig hefur félagið fengið markvörðinn Kyla Elizabeth Burns.

Burns er 24 ára gömul og lék á síðasta ári með Breiðabliki í Bestu deildinni. Áður spilaði hún með Delaware í háskólaboltanum þar sem hún var valin besti markvörður ársins 2024.

KR spilar í Lengjudeildinni, en liðið hafnaði í 5. sæti á síðasta tímabili með 28 stig.




Slapp
banner
banner