Ísak ásamt Nicas Kjeldsen, yfirmanni fótboltamála hjá Lyngby, og Kjartani Henry Finnbogasyni umboðsmanni sínum.
Lyngby hefur gengið frá kaupum á Ísaki Snæ Þorvaldssyni frá Rosenborg. Ísak Snær er á láni hjá danska félaginu frá því norska og var kaupákvæði í lánssamningnum. Ísak skrifar undir samning sem gildir til 2029.
Rosenborg keypti Ísak eftir að hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2022 en hann náði aldrei almennilega að stimpla sig inn hjá norska stórliðinu. Höfuðmeiðsli settu strik í tímabilið 2023, 2024 var hann á láni hjá Breiðabliki og síðasta sumar fór hann til Lyngby.
Ísak er lykilmaður í liði Lyngby sem er nálægt því að tryggja sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað sjö mörk í 25 leikjum með danska liðinu frá því að hann kom í sumarglugganum í fyrra.
Rosenborg keypti Ísak eftir að hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2022 en hann náði aldrei almennilega að stimpla sig inn hjá norska stórliðinu. Höfuðmeiðsli settu strik í tímabilið 2023, 2024 var hann á láni hjá Breiðabliki og síðasta sumar fór hann til Lyngby.
Ísak er lykilmaður í liði Lyngby sem er nálægt því að tryggja sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað sjö mörk í 25 leikjum með danska liðinu frá því að hann kom í sumarglugganum í fyrra.
Liðið er með átta stiga forskot þegar sex umferðir eru eftir. Lyngby er að spila gegn Esbjerg þessa stundina en Ísak er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
„Ísak er frábær framherji sem hefur mikil áhrif á leik okkar á vellinum – eitthvað sem við höfum líka tekið eftir þegar við höfum saknað hans um tíma. Þannig að í Ísaki fáum við góðan leikmann sem við teljum að við getum gert enn betri í úrvalsdeildinni.“
„Það er ennþá eitthvað í honum sem á eftir að virkja, eitthvað sem við vitum að við getum þróað. Við höfum þegar tekið stór skref með honum á þeim stutta tíma sem hann hefur verið hjá okkur og við vitum að við getum tekið hann enn lengra á komandi árum," segir Nicas Kjeldsen sem er yfirmaður fótboltamála hjá Lyngby.
„Hann er mjög líkamlega sterkur, liðsmaður, og býr jafnframt yfir miklum hraða í leik sínum. Þar að auki er hann tæknilega sterkur og góður í loftinu. Þegar við spilum með tvo framherja er frábært að hafa tengilið eins og hann. Hann er frábær uppspilsleið fyrir leik okkar."
Ísak tjáir sig sjálfur um undirskriftina.
„Ég er mjög ánægður með að þessi samningur sé nú í höfn. Mér líður mjög vel með þjálfarateymið, leikmennina og alla aðra hjá félaginu. Við erum með frábæran hóp, svo þetta er mjög góður staður til að vera á - bæði persónulega og sem fótboltamaður.“
Sæti í úrvalsdeildinni er innan seilingar og markmiðin hjá íslenska framherjanum eru skýr.
„Aðalmarkmið okkar um að komast upp í úrvalsdeildina er innan seilingar, en bæði markmið félagsins og mín eru að við festum okkur í sessi í úrvalsdeildinni. Ég hlakka mjög til að halda áfram að vera hluti af þeirri vegferð - og auðvitað leggja mitt af mörkum með mörgum mörkum.“
Ísak bendir einnig á stuðninginn úr stúkunni sem mikilvægan hluta af upplifuninni í Lyngby.
„Aðdáendur félagsins eru frábærir. Þeir styðja okkur í hverjum einasta leik – jafnvel þegar hlutirnir hafa ekki alltaf gengið eins og við viljum. Ég hlakka virkilega til að hafa þá með mér næstu þrjú árin,“ segir Ísak.




