Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   þri 21. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atli Þór til Dalvíkur (Staðfest)
Mynd: Dalvík/Reynir
Atli Þór Sindrason er genginn til liðs við Dalvík/Reyni á láni frá grönnunum í Þór.

Atli er fæddur árið 2007. Hann er uppalinn á Blönduósi en kom í Þór í 4. flokki. Hann kom við sögu í 14 leikjum og skoraði eitt mark í fyrra þegar Þór vann Lengjudeildina. Hann var valinn efnilegasti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins.

Hann er sóknarmaður og hann kemur til með að hjálpa Dalvík/Reyni í 2. deildinni í sumar.

„Atli er hraður, áræðinn og leikinn kantmaður sem getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum. Velkominn Atli - Við hlökkum mikið til að sjá þig í bláu treyjunni í sumar," segir í tilkynningu félagsins.


Slapp
banner
banner