Maria Baska er gengin til liðs við Afturelding frá Gróttu. Hún spilaði átta leiki í Lengjudeildinni og bikarnum með Gróttu og skoraði tvö mörk.
Hún tekur nú slaginn með Aftureldingu í 2. deild.
Hún tekur nú slaginn með Aftureldingu í 2. deild.
Tilkynning Aftureldingar
Það gleður okkur að tilkynna að Maria Baska hefur ákveðið að taka slaginn með okkur í Aftureldingu í sumar en hún hefur skrifað undir samning út árið 2027.
Maria er fædd árið 2000 og kemur hún til okkar frá Gróttu. Maria á rætur að rekja til Albaníu en er uppalin í Grikklandi og spilar hún sem framherji.
Maria hefur spilað víða á ferlinum en nefna má Omonia, Trabzonspor, Asteras Tripolis meðal fleirra.




