FRÉTTIR20.04.2026, 14:00
Rúmenska goðsögnin Gheorghe Hagi er tekinn við sem nýr landsliðsþjálfari Rúmeníu. Hann tekur við af Mircea Lucescu sem lést á dögunum.
Lusescu stýrði Rúmenum í 1-0 tapinu gegn Tyrkjum í undanúrslitum HM-umspilsins í mars og varð þar með elsti landsliðsþjálfari sögunnar.
Rúmenar áttu síðan æfingaleik við Slóvakíu, en nokkrum tímum fyrir flug fékk Lucescu fyrir hjartað og gat því ekki ferðast í leikinn. Nokkrum dögum síðar lést Lusescu.
FRÉTTIR20.04.2026, 11:11
Helga Rut Einarsdóttir er gengin í raðir Vals en félagið hefur keypt hana frá Breiðabliki.
Helga kemur í Val eftir eitt ár hjá Breiðabliki þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari. Hún lék áður með Grindavík. Á síðasta tímabili lék hún alls 17 leiki með Blikum.
FRÉTTIR20.04.2026, 06:00
Höttur hefur landað miðverðinum reynda Dennis Nieblas Moreno frá Grindavík.
FRÉTTIR18.04.2026, 08:00
Lengjudeildarlið FHL hefur fengið til sín varnarmanninn Abigail Steen til félagsins og mun hún leika með liðinu út þetta keppnistímabil.
FRÉTTIR18.04.2026, 07:30
Bandaríski varnarmaðurinn Maya Camille Neal er gengin til liðs við Gróttu í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR17.04.2026, 21:00
<b>Blackburn 1 - 1 Coventry</b>
1-0 Ryoya Morishita ('54 )
1-1 Bobby Thomas ('84 )
FRÉTTIR17.04.2026, 12:57
Frakkinn Herve Renard hefur verið rekinn sem landsliðsþjálfari Sádi-Arabíu nú þegar innan við tveir mánuðir eru í að HM 2026 fer af stað.
Renard stýrði Sádi-Arabíu á HM í Katar og tók svo aftur við liðinu í lok árs 2024.
FRÉTTIR17.04.2026, 12:30
Ýmir Már Geirsson hefur verið lánaður frá Þór til grannanna í Magna á Grenivík út þetta tímabil. Magni fór upp úr 3. deildinni í fyrra og verður í 2. deild í sumar.
Ýmir þekkir vel til á Grenivík því hann lék með liðinu á árunum 2017 og 2021.
Ýmir vann sér inn í lið Þórs á síðasta tímabili og gerði vinstri bakvarðarstöðuna að sinni. Hann lék 19 leiki þegar Þór vann Lengjudeildina.
FRÉTTIR17.04.2026, 11:30
Franski varnarmaðurinn Walid Abdelali hefur samið um að leika með Lengjudeildarliði Völsungs á komandi tímabili.
FRÉTTIR17.04.2026, 09:30
Miðjumaðurinn Thelma Sól Óðinsdóttir er gengin til liðs við HK í Lengjudeildinni en hún gerir samning út 2027.
FRÉTTIR17.04.2026, 08:30
Keflavík hefur samið við unglingalandsliðsmanninn Egil Val Karlsson, sem kemur til félagsins frá Breiðabliki.
FRÉTTIR16.04.2026, 21:51
Alexander Helgi Sigurðarson er mættur til Njarðvíkur á láni frá KR út þetta tímabil.
FRÉTTIR16.04.2026, 14:16
Gabríel Snær Gunnarsson mun í sumar ganga í raðir sænska félagsins Elfsborg frá ÍA. Sænska félagið kaupir Gabríel og skrifar hann undir þriggja ára samning við félagið. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum Gabríels til Elfsborg fyrr í vetur.
Þeir Ari Sigurpálsson og Júlíus Magnússon eru leikmenn Elfsborg.
FRÉTTIR16.04.2026, 12:16
Manchester City hefur staðfest að Bernardo Silva mun yfirgefa félagið í sumar.
Portúgalinn, sem er 31 árs, gekk í raðir City 2017 og hefur hann spilað 451 leik á níu árum hjá félaginu. Hann hefur skorað 76 mörk og átt 77 stoðsendingar.
Hann hefur unnið fimmtán stóra titla með félaginu, þar á meðal sex úrvalsdeildartitla og Meistaradeildina einu sinni. Fyrir þetta tímabil var hann gerður að fyrirliða City.
FRÉTTIR16.04.2026, 07:00
Leiknir hefur tilkynnt að Hólmar Kári Tryggvason og Bjarki Arnaldarson hafa yfirgefið félagið.
Hólmar er framherji fæddur árið 2006 en hann ólst upp hjá ÍR. Hann kom til Leiknis frá spænska liðinu Orihuela í fyrra og kom við sögu í einum leik með aðalliðinu. Hann var þá mikilvægur hlekkur í 2. flokki liðsins.
Hann fór ungur að árum til Spánar en hann hóf meistaraflokksferil sinn með CD Thader þar sem m.a. Xavi Simons hóf sinn feril.
FRÉTTIR16.04.2026, 06:00
Miðjumaðurinn Hilmar Óli Viggósson er genginn til liðs við Ægi frá Val. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Hilmar Óli er fæddur árið 2007 en hann hefur spilað með yngri flokkum HK og Breiðabliks en hann gekk til liðs við Val árið 2024 þar sem hann spilaði með 2. flokki félagsins. Hann kom við sögu í einum leik í Lengjubikarnum í vetur.
FRÉTTIR16.04.2026, 06:00
KFG hefur fengið liðstyrk en Brynjar Gauti Guðjónsson og Henrik Máni B. Hilmarsson eru gengnir til liðs við félagið.
Brynjar Gauti er reynslumikill leikmaður en hann kemur til liðsins frá Fjölni þar sem hann spilaði 14 leiki í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn hjá Víkingi Ó. en hann er með mikla reynslu úr efstu deild með ÍBV, Stjörnunni og Fram.
FRÉTTIR15.04.2026, 13:11
Oliver Heiðarsson er genginn í raðir KA en hann kemur til félagsins frá króatíska félaginu Lokomotiva Zagreb. Oliver skrifar undir þriggja ára samning á Akureyri. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum á laugardag. Oliver er mættur til Akureyrar og getur spilað gegn Víkingi í 2. umferð Bestu deildarinnar á föstudag.
Hann er 25 ára sóknarmaður sem býr yfir miklum hraða. Hann hefur mest spilað á hægri kantinum en hefur einnig spilað í fremst á vellinum. Oliver er uppalinn hjá Þrótti en lék með FH og blómstraði hjá ÍBV áður en hann hélt til Króatíu.
Á síðasta ári reyndu bæði Valur og KA að kaupa hann af ÍBV en án árangurs og hélt Oliver á frjálsri sölu til Króatíu eftir síðasta tímabil. Oliver var besti leikmaður Lengjudeildarinnar 2024, meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili en hann skoraði þó fjögur mörk og lagði upp þrjú í 20 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.
FRÉTTIR15.04.2026, 12:08
<b>Serbía 0 - 3 Ísland</b>
0-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('28)
0-2 Freyja Stefánsdóttir ('36)
0-3 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('50)
<i>Upplýsingar fengnar frá UEFA</I>
FRÉTTIR15.04.2026, 08:00
Bandarísku meistararnir í Inter Miami voru ekkert að flækja hlutina við ráðningu á nýjum þjálfara en það kemur Argentínumaður í stað Argentínumanns. Guillermo Hoyos er tekinn við af Javier Mascherano sem sagði upp störfum vegna persónulegra ástæðna.